...ætti alveg endilega að byrja að blogga líka! Les hún yfirleitt bloggin okkar hérna? Ef hún gerði það, væri hún þá ekki komin með blog? Er henni bara alveg sama um okkur íslendingana í útlegð hérna, hennar nánustu ástvini? Ég bara spyr! Eða kann hún bara ekkert á þetta? Þegar meira að segja Ninna (hamar og meitill) er farin að blogga ætti nú Birna alveg að geta gert það líka! Eða hvað! Birna!!! Ég er að verða bitur, ekki svíkja okkur svona!!!
Hvað er annars í fréttum? Jú, Stokkhólmsferðin er í hættu, strákurinn sem við ætluðum með er hættur við, og við höfum ekki efni á bæði hótelinu og rútuferðinni uppeftir...ef enginn annar er á leið þangað sem við getum farið með sjáum við fram á að þurfa að annað hvort sleppa þessu alveg eða gista hjá tengdapabba...sem mér finnst allt í lagi, en ekki manninum mínum...En það gerir ekkert til, til Stokkhólms skal ég, hótel eða ekki, með manninum mínum eða ekki...missi sko EKKI af þessu! Ég get alveg farið ein ef hann vill ekki gista hjá tengdapabba, ekkert mál!
Bloggar | 6.2.2007 | 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þessi sænski hugsunarháttur er alveg ótrúlegur...
Mér var boðið í mat í dag til frænku vinkonu minnar, fékk mjög góðan íranskan mat, Gorme Sabsi, kaffi og með því. Síðan settist ég við tölvuna hjá henni til að reyna að koma henni í lag. Sat við það dálítið lengi, enda eitthvað meira en lítið að, en tókst nú svosem ekki að gera svo mikið í því, hreinsaði aðeins út og lagaði til svo stelpan hennar gæti spilað spilið sitt. Þegar allt var búið og allir orðnir þreyttir skutlaði hún okkur heim...og spurði svo: "Viltu ekki fá eitthvað fyrir hjálpina?"
Hvað er það með þessa þjóð að halda að maður þurfi að borga eitthvað fyrir að einhver annar lyfti rassinum á sér??? Ég varð næstum því hneyksluð!!! Svona hefði enginn spurt heima á Íslandi! Ég er ALLS enginn tölvusérfræðingur og gat heldur ekki lagaði hana eins vel til og þörf hefði verið á, og mér myndi ALDREI koma til hugar að taka borgað fyrir að ég geri einstæðri tveggja barna móður sem mér líkar vel við og sem þar að auki er náskyld einni bestu vinkonu minni, smá greiða!
Talaði við elskulegan tengdaföður minn í dag, við mæltum okkur mót í miðbæ höfuðborgarinnar eftir nákvæmlega viku, Stokkhólmur here I come!
Bloggar | 3.2.2007 | 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
...lögfræðingurinn minn er ennþá á lífi! Búin að reyna að ná í hann í nærri því heila viku og loksins hringdi hann, klukkan 8 í morgun! Gott!
Það vita flestir sem mig þekkja að ég er ekki mikið fyrir börn...nema þau sem eru alveg náskyld mér (mín eigin og svo þau sem ég ekki þarf að hitta allt of oft... ). En einhvern veginn tekst mér alltaf að koma mér í aðstæður þar sem ég þarf að umgangast börn, allrahelst börn sem mér finnst ekki alltof skemmtileg!!! Vinkona mín hringdi í morgun og bað mig að passa fyrir sig...við sem erum ekki skyld barninu hennar köllum hana dóttur djöfulsins! Haldiði ekki að asninn ég segi bara jú jú, ekkert mál, komdu bara með hana!!! Oh my god!!! Þegar ég fattaði hvað ég hafði sagt settist ég og byrjaði að skrifa sjálfsmorðsbréfið, hringdi svo og kvaddi manninn minn, þakkaði honum fyrir sæmilegt hjónaband og bað hann að skila því til barnanna minna að ég elskaði þær! Að samþykkja að passa þetta barn er nefnilega nokkuð sem maður bara gerir ef maður er mikið fyrir sjálfspyntingar eða ef maður er með dauðaósk! 2 tímum seinna er ég eiginlega alveg að vera komin í þrot með hvað ég á að láta mér detta í hug að ég þurfi að gera til að hún láti mig í friði í smá stund...hún eltir mig út um allt og vill hjálpa mér nefnilega...AAAARGGHHH!!!!!
Gleymi því aldrei fyrir nokkrum árum síðan þegar ég sótti um sumarvinnu, merkti óvart við í boxið fyrir vinnu á dagheimili og fattaði það ekki fyrr en ég var búin að skila inn pappírunum. Vildi snúa við en Jenni (hver annars) sagði mér að hafa ekki áhyggjur af því, ég fengi hvort eð er enga vinnu!
En, hvað gerist svo? You guessed it, ég fékk vinnu á dagheimili!!! Þetta var versta vikan í lífi mínu...svo fór ég heim og kom aldrei tilbaka!!! Takk Jenni!
Getur einhver komið og sótt þetta barn núna!!!
Stokkhólmur...8 dagar and counting!
Talaði við elsku Söru mína ídag, mikið voðalega þykir mér vænt um hana!
Bloggar | 1.2.2007 | 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
...mikið rosalega er ég þreytt! Ég fékk bréf í dag um að súperpabbinn hafi bókað tíma í familjerätten út af því að við séum ekki sammála um hvernig við ætlum að hafa þetta með Beccu litlu...þoli ekki hvað þetta tekur mikla orku frá mér að vera svona spennt alltaf...læt þetta hafa alltof mikil áhrif á mig, get ekki sofið almennilega, er að drepast í öxlunum og bakinu, alltaf þreytt og pirruð og þegar ég er úti, sérstaklega þegar ég er að sækja Nathalie til dagmömmunnar (sem á heima rétt hjá kærustunni hans) er ég alltaf með í maganum og sný mig nærri því úr hálslið við að gá að honum...
Vildi óska að hann gæti bara gufað upp!!!
Nathalie kom í gær og sagði að mér væri alveg sama um hana *fliss*...hún er svo mikill ormur...
Elska börnin mín en líf mitt gæti samt alveg verið aðeins betra akkúrat núna...væri alveg til í að fá smá næði...
Nóg kvartað í dag...
Birna, byrjaðu að blogga...plíís!
Bloggar | 31.1.2007 | 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
BREKKUSNIGLAR ERU BESTIR Á SKAUTUM OG Í ÖLLUM ÖÐRUM ÍÞRÓTTUM LÍKA! INNBÆINGAR ERU FÁTÆKIR AUMINGJAR MEÐ HOR OG SLEF!!!
Hehe...og hananú!
Rosalega finnst mér pirrandi þegar maður getur ekki gert það sem maður vill! Ætlaði að skrá mig inn á heimasíðu ICA, man ekki kóðann minn og er löngu búin að henda bleðlinum sem hann var skrifaður á! Ok, hugsaði ég með mér, skítt með það, hringi bara og læt þá segja mér kóðann...hélt ég! Þrem símtölum seinna kemst ég loks í samband, en er þá sagt að það sé 13 mínútna bið!!! Ég held nú heldur betur ekki!!! Ég bíð sko EKKI í nærri því korter!!!
Svo er maður nú svo skrítinn að þeim mun meira sem ég hugsa um það, þeim mun meira ásækir það mig...það er RÉTTUR minn að komast inn á síðuna mína! Ég er sko góður kúnni og á sko skilið betri þjónustu en þetta...ÉG VIL KOMAST INN Á SÍÐUNA, HLEYPIÐ MÉR INN!!!
Hvers vegna mig vantar að komast inn á þessa síðu? Eeh...langaði bara til að skoða tilboð vikunnar...þú veist, þessi sömu sem eru í auglýsingableðlinum frá ICA sem liggur á eldhúsborðinu mínu...
Bloggar | 29.1.2007 | 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fjandinn, kom ekki nema hláka! Vil alveg endilega hafa snjó svolítið lengur, náði ekki einu sinni að kaupa almennilega snjóþotu
Fór á skauta í gær...þegar ég svo sat og var að drepast í fótunum eftir bara fimm mínútur á ísnum reiknaði ég út að það eru ein 17 ár síðan ég gerði þetta síðast...fyrir utan þær 2 mínútur í Huskvarna sem ég fékk lánaða skauta sem voru 2 númerum of litlir, þá náði ég varla að standa upp fyrr en ég gafst upp...soldið þröngt...
Ekki skrítið þótt ég hafi fundið til...
Verð að finna skautanámskeið einhversstaðar handa Beccu minni...hún minnti mig einum of mikið á Bamba á hálum ís...
Nathalie fékk líka að fara með, á snjóþotu, skautalaus...og þar með er ég búin að hefta hennar persónulega þroska um alla framtíð...VERÐ að kaupa skauta handa henni líka PRONTO!!!
Jæja, nú ætla ég að búa til pizzu, the Icelandic way með pepperoni!
Bloggar | 28.1.2007 | 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Góði Guð! Viltu leyfa mér að endurfæðast sem græneðla í næsta lífi!
Birna, lastu þetta? Tihi...
![]() |
Með stinnan lim í viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.1.2007 | 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er kannski ekki í frásögur færandi en Nathalie Erna var rétt í þessu að enda við að gera númer 1 OG númer 2 Í KLÓSETTIÐ!!!
Maður getur nú orðið stoltur yfir minni afrekum en því!
Bloggar | 27.1.2007 | 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þar kom loksins að því, eftir langa þögn gerðist það....exið birtist í skólanum hjá Beccu, hélt því fram að ég væri að gera henni stóran grikk með því að neita henni réttar síns að fá að hitta hann, að það væri ólöglegt, hann væri sko búinn að tala við lögguna og lögfræðinginn minn og örugglega djöfulinn sjálfann líka og að ég mætti sko alls ekki gera svona, að ég fengi fleiri þúsund í sektir fyrir hverja helgi sem ég héldi henni heima og Guð má vita hvaða vitleysu hann lét út úr sér! Ég benti honum rólega á fyrir framan kennara og börn að hann mætti sko alveg hitta dóttur sína, ég vildi bara ekki að hann væri útúr dópaður með hana. Heldurðu ekki að hann segi setningu sem á eftir að verða klassísk einhverntímann: "Ég er sko búinn að vera edrú ALLT ÞETTA ÁR!" Nei, til hamingju með það væni. Og hann ætlaði sko að draga mig fyrir rétt, og hún skyldi sko ekkert fá að búa hjá mér lengur og allt eftir þessu. Ég sagði honum að endilega fara fyrir rétt, það væri nákvæmlega það sem ég vildi, og ef það væri satt að hann sé búinn að vera edrú alveg allar þessar...hvað...3 vikur eða svo væri það líka flott...það væri líka það sem ég vildi...ef hann gæti nú sannað það líka væri það alveg meiriháttar...ég vil alveg endilega að hún fái að vera hjá pabba sínum...þegar hann er í góðu lagi, en þegar hann er í heavy neyslu NO WAY!
Að sjálfsögðu fékk ég þvílíkan móral yfir að ég væri að gera einhverja vitleysu, en ég ætlaði ekkert að láta hann sjá það...ég fór heim og hringdi sjálf í lögguna og fékk að vita að ef hann tæki hana með sér eftir skólann gæti ég kært hann...er enn að bíða eftir að lögfræðingurinn minn hringi...
Vissi að sprengjan kæmi fyrr eða síðar, og því miður tókst honum það sem hann ætlaði sér, nefnilega að hræða mig...en ég lét hann ekki sjá það og ég gefst sko ekki upp...eins og ástandið er búið að vera þá er hann ekki hæfur pabbi og þarafleiðandi sendi ég hana ekki til hans fyrr en ástandið hefur batnað! Sem betur fer þá eru margir sem styðja mig í þessu...
Leiðinda mál og leiðinda dagur ídag Þurfti ekkert á þessu að halda líka akkúrat núna!
O jæja, á morgun er nýr dagur og þá ætla ég að fara á skauta með Beccu í fyrsta skiptið ever...synd að Nathalie Erna er of lítil
Í dag ætla ég bara að slappa af og umgangast fjölskylduna og reyna að jafna mig eftir daginn ídag!
Bloggar | 26.1.2007 | 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Voðalega getur fólk æst sig upp út av engu! Dóttir nágrannakonunnar kom ídag og sagði að það væri enginn heima hjá sér. Ég vissi að amma hennar átti að taka á móti henni heima hjá henni svo ég sagði henni að koma bara inn svo skyldum við hringja í ömmuna, ekkert mál. Verð að leggja til að þetta var bara hálftíma eftir að stelpan hætti í skólanum, það tekur Beccu mína 45-60 mínútur að koma heim (skólinn er 5 mínútna labb héðan ).
Sagt og gert, ég hringi í ömmuna og skil varla hvað hún segir, hún andar svo dónalega í símann, en ég kem því til skila að stelpan sé hjá mér, allt í fína. Amman kemur, bókstaflega fljúgandi inn hjá mér, á skónum inn í eldhús hjá mér, öskrandi, gargandi, að gráti komin, svo æst að ég var að hugsa um að bjóða henni bréfpoka að anda í, lagði bara ekki í að koma nálægt henni...hrædd um að hún myndi gleypa mig í einni innöndun. Og það sem hún skammaði stelpugreyið...mér finnst þessi krakki alveg hræðilega leiðinlegur en m.a.s. mér ofbauð. Þá er sú gamla búin að eyða þessum hálftíma í að ganga um allt hverfið öskrandi, búin að virkja skólann í að stofna símakeðju til að leita að krakkanum og fá hálft hverfið til að ganga um hrópandi. Pælið í því hversu miklu maður getur komið í verk bara á hálftíma...og greyið stelpan átti að fá sjónvarpsbann, útigangsbann og bara hreinlega öndunarbann eða eitthvað...svo þar að auki talaði amman við skólann og sagði að stelpan mætti ekki fara heim sjálf alla næstu vikuna! Nokkuð sem hún gleymdi svo að segja mömmunni...
Mamman kom niður til mín áðan til að heyra mína hlið...hún var vísst að upplifa að hún þyrfti kannski jafnvel að útskýra ýmislegt fyrir skólanum á morgun og t.d. kannski biðjast afsökunar á hegðun þeirrar gömlu...
Sko...mér hefur orðið virkilega órótt þegar Becca mín hverfur í klukkutíma eða meira, en fyrr má nú vera...það tekur langan tíma fyrir krakka að labba heim úr skólanum, margt að sjá, margir að tala við...
Þarf ég að nefna að það varð ekkert allsherjarbann úr þessu, ömmunni til mikillar gremju...
Á morgun eru 2 vikur þangað til ég fer til Stokkhólm barnlaus...hlakkar svo til....Eric Clapton, here I come!!! Elska að það er engin nafnleynd á NA-ráðstefnum...ég er að fara að hlusta á Eric Clapton segja frá leið sinni til bata og ég má segja frá því á eftir!!! Life is soooo good!!!
Bloggar | 25.1.2007 | 18:52 (breytt kl. 18:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)