WHAT!!?

BREKKUSNIGLAR ERU BESTIR Á SKAUTUM OG Í ÖLLUM ÖÐRUM ÍÞRÓTTUM LÍKA! INNBÆINGAR ERU FÁTÆKIR AUMINGJAR MEÐ HOR OG SLEF!!!

Hehe...og hananú!

Rosalega finnst mér pirrandi þegar maður getur ekki gert það sem maður vill! Ætlaði að skrá mig inn á heimasíðu ICA, man ekki kóðann minn og er löngu búin að henda bleðlinum sem hann var skrifaður á! Ok, hugsaði ég með mér, skítt með það, hringi bara og læt þá segja mér kóðann...hélt ég! Þrem símtölum seinna kemst ég loks í samband, en er þá sagt að það sé 13 mínútna bið!!! Ég held nú heldur betur ekki!!! Ég bíð sko EKKI í nærri því korter!!!
Svo er maður nú svo skrítinn að þeim mun meira sem ég hugsa um það, þeim mun meira ásækir það mig...það er RÉTTUR minn að komast inn á síðuna mína! Ég er sko góður kúnni og á sko skilið betri þjónustu en þetta...ÉG VIL KOMAST INN Á SÍÐUNA, HLEYPIÐ MÉR INN!!!

Hvers vegna mig vantar að komast inn á þessa síðu? Eeh...langaði bara til að skoða tilboð vikunnar...þú veist, þessi sömu sem eru í auglýsingableðlinum frá ICA sem liggur á eldhúsborðinu mínu... Blush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

Veit það hefur alltaf háð þér að vera ekki Innbæingur nema að 1/2 en það sem er verra er að pabbi þinn er af Eyrinni, getur ekki versnað !  ICA rules!

Erna Evudóttir, 29.1.2007 kl. 14:07

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Æ æ lífið er engin leikur

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.1.2007 kl. 16:33

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú átt alla mína samúð !

Jónína Dúadóttir, 30.1.2007 kl. 07:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband