Birna...

...ætti alveg endilega að byrja að blogga líka! Les hún yfirleitt bloggin okkar hérna? Ef hún gerði það, væri hún þá ekki komin með blog? Er henni bara alveg sama um okkur íslendingana í útlegð hérna, hennar nánustu ástvini? Ég bara spyr! Eða kann hún bara ekkert á þetta? Þegar meira að segja Ninna (hamar og meitill) er farin að blogga ætti nú Birna alveg að geta gert það líka! Eða hvað! Birna!!! Ég er að verða bitur, ekki svíkja okkur svona!!! GrinTounge

Hvað er annars í fréttum? Jú, Stokkhólmsferðin er í hættu, strákurinn sem við ætluðum með er hættur við, og við höfum ekki efni á bæði hótelinu og rútuferðinni uppeftir...ef enginn annar er á leið þangað sem við getum farið með sjáum við fram á að þurfa að annað hvort sleppa þessu alveg eða gista hjá tengdapabba...sem mér finnst allt í lagi, en ekki manninum mínum...En það gerir ekkert til, til Stokkhólms skal ég, hótel eða ekki, með manninum mínum eða ekki...missi sko EKKI af þessu! Ég get alveg farið ein ef hann vill ekki gista hjá tengdapabba, ekkert mál!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hamar og meitill hvað  Alveg sammála að Birna bara verður að fara að blogga, ég er alveg hætt að skilja þetta með hana ! Heyrðu elskan, ef ég á leið til Stokkhólms skal ég taka ykkur með

Jónína Dúadóttir, 6.2.2007 kl. 14:38

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Þetta er nú bara andlegt ofbeldi að Birna er ekki byrjuð að blogga! Ofsóknir, einelti og mannvonska!

Erna Evudóttir, 6.2.2007 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband