Vaknaði í morgun og leit á hitamælinn sem er við svefnherbergisgluggan minn...25 stig! Kíkti bak við gardínuna...heiðblár himinn og gassandi sól...í dag AFTUR Ég gæti vanist þessu!!!
Becca og stjúpi hennar eru í útilegu, í þessu yndislega veðri, myndi öfunda þau ef það væri ekki fyrir allar kóngulærnar og hinar blóðsjúgandi ógeðslegu pöddurnar sem ég veit eru þarna úti í náttúrunni...oj bara!!! Held ég skelli mér bara út á róló með litlu skvísuna ef ég get slitið hana frá sjónvarpinu án þess að hún bíti hausinn af mér ...og nei, hún er ekkert skapstór, hún er bara ákveðin! Hahahaha...
Ætlaði að gera heiðarlega tilraun til að byrja að fylgjast með stjórnmálum á Íslandi, svona svo ég gæti nú ákveðið amk hvaða flokk ég ætti að veita atkvæði mitt, en held ég sleppi því bara alveg...komst nefnilega að þvi að það er of seint fyrir mig að kæra mig inn á kjörskrá, hefði átt að gera það fyrir 1. desember Í FYRRA!!! Fyrirgefið mér, en þá var ég nú bara alls ekki að pæla í neinum kosningum, meira að segja búin að gleyma kosningunum hérna, þar sem minn flokkur fékk sorglega fá atkvæði!
Einhvern veginn finnst mér nú að þetta blessaða sendiráð okkar í Stokkhólmi gæti nú kannski bara jafnvel gert eitthvað gagn og sent td svona upplýsingar til okkar sem búum hérna, þeir eiga alveg að vera með skrár yfir Íslendingana hérna í Svíþjóð! Og fyrst að ég er nú hvort eð er farin að kvarta yfir sendiráðinu þá dettur mér í hug allar ræðismannsskrifstofurnar sem ég sá á einhverjum lista inni á heimasíðu sendiráðsins...þetta var listi yfir ræðismenn hérna í Svíþjóð, en þar að auki ræðismenn í fleiri löndum, man nú ekki hverjum, en allavega var Pakistan með og eitthvað meira, þetta var listi yfir 9 ræðismannsskrifstofur og af þeim var 1!!! ræðismaður íslenskur!!! Bíddu við, er ekki ræðismaðurinn gaurinn sem maður á til dæmis að geta farið til þegar maður lendir í einhverjum vandræðum í landi þar sem maður kannski skilur ekki málið og þessháttar? Er þá ekki alveg lágmark að viðkomandi kunni íslensku??? Er ekki alveg að sjá fyrir mér að 8 manneskjur, fjórar í Svíþjóð og aðrar fjórar í Pakistan, Serbíu og Búlgaríu séu búnar að fara á íslenskunámskeið!!! Eða hvað!?
Jæja, nóg um það, nú er ég farin út í góða veðrið og læt mér svo bara nægja sænsk pólitík í bili, það er víst nógu andsk*** mikið að í henni líka!!!
Eigið yndislegan dag í dag hvort sem það er hitabeltisveður eða gluggaveður hjá ykkur!
Bloggar | 15.4.2007 | 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Búin að eignast nýtt uppáhaldslag!!! Heyrði loksins íslenska lagið í Eurovision og finnst það frábært!!! Fallegur texti, flott tónlist, góður flytjandi!!! Því til heiðurs kemur allur textinn hérna, á íslensku, fyrir ykkur sem takið ykkur ekki tíma til að hlusta sjálf
Ég les í lófa þínum
leyndarmálið góða.
Ég veit það nú, ég veit og skil,
það er svo ótalmargt
sem ætla ég að bjóða.
Já, betra líf með ást og yl.
Í lófa þínum les ég það
að lífið geti kennt mér að
ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.
Það er svo augljóst nú
að allri draumar rætast.
Við höldum frjáls um höf og lönd.
Um lífið leikum við
og lófar okkar mætast.
Þá leiðumst við, já hönd í hönd.
Í lófa þínum les ég það
að lífið geti kennt mér að
ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.
Ég ætla að fara alla leið
með ást á móti sorg og neyð.
Ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.
Ekki það, mér finnst enski textinn alveg frábær líka, þið getið bæði heyrt lagið á ensku og íslensku og lesið báða textana ef þið farið inn á http://www.ruv.is/heim/vefir/eurovision/lagid/.
Annars er það að frétta að í fréttunum í gær var varað við sólinni hérna, hún er óvanalega sterk fyrir þennan tíma árs og það er ekki mælt með að maður sé úti í sólinni lengur en klst á dag, plús það að manni ber að bera á sig sólarvörn og sérstaklega á krakkana. Það er víst eitthvað lítið um óson fyrir ofan okkur um þessar mundir! Mér finnst nú eiginlega svolítið skuggalegt þegar það er farið út og maður varaður við sterkri sól svona snemma árs hérna!!!
Svo ef einhver nennir að lesa svona langt, get ég sagt frá því að við fórum í fyrradag og keyptum okkur hjól, ég og kallinn, svo nú er sko heldur betur útivist í gangi (í hættulegu sólinni ) og hjólaferð á planinu í sumar, jafnvel með tjald í förinni! Yndislegt bara!!!
Eigið góðan sólardag í dag!
Bloggar | 14.4.2007 | 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)

![]() |
Hús Johnny Cash brann til grunna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 11.4.2007 | 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Er enn á svæðinu...búin að hafa nóg að gera við að skemmta Einari litla og kærustunni Nei, nei...þau sáu nú alveg um það sjálf!
Var með vöðvabúnt í mat á þriðjudaginn...gullfallegur gæi sem fær mann til að óska þess að maður væri fráskildur... Sá hinn sami samþykkti að gerast einkaþjálfarinn minn þannig að nú er mín loksins á leið í ræktina
Einar fór ídag, tók því miður Johanna með sér heim, she´s a keeper!!! Hún má flytja hingað any day...yndisleg stelpa!!! Tómlegt þegar þau fóru en það stendur til bóta af því að eftir bara klukkutíma kemur Ívar... frábært!!!
Nú ætla ég að halda myndarlega páska, keypti meira að segja lambalæri!!! Ef ég sé ykkur ekki fyrir páska eigið góða helgi með mikið af súkkulaði...eggin mín koma víst eftir páska!!!
Love to everybody!
Bloggar | 6.4.2007 | 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Finnst ég endilega þurfa að skrifa eitthvað hérna, er svo langt síðan síðast...er bara eitthvað voða andlaus og sybbin...held að kvefið hafi farið alveg upp í heila bara!
Fór niðrá löggustöð í morgun (kva...fleiri en Birna sem vilja láta taka sig af löggunni ) með vinkonu minni, hún þurfti að kæra kallógeð sem er að gera henni lífið leitt...hann rekur verslun beint á móti hennar verslun og þau eru með svipaðar vörur og já, hann er ekkert allt of hrifin af samkeppninni og slæst ekki hreint! Greinilega margir þarna í kring hræddir við hann...hann er svona útsmogin lítil rotta, eyðileggur vörur fyrir henni...sýnir henni puttann (já, þetta þykist vera fullorðið) og þess háttar ógeð!!! Og löggan náttúrulega getur ekkert gert af því að ekkert er hægt að sanna þó svo það liggi í augum uppi hver stendur á bak við skemmdir og annað sem hefur verið að koma fyrir hana!!! Pirrandi, þetta er ofsalega indæl kona sem er búin að ganga í gegnum nóg!!!
Ídag kemur "litli" guttinn minn hann Einar, og tekur með sér kærustuna! Það finnst mér vera stórt!!! Ofsalega cool! Það verður gaman að hitta þau bæði, líst vel á hana! Ætla að taka þau með mér á aikido æfinguna hennar Beccu í kvöld og svo elda eitthvað gott handa þeim og svona...mikið rosalega er litli kallinn minn orðinn stór!!! Ég fæ alveg tár í augun!!!
Jæja, ætla að fá mér kaffi, hugleiða hvort það er einhver sem ég þarf að hringja í og skamma, er í ham eftir að hafa talað við lögguna, og svo ætla ég að sækja litlu englana mína! Eigið góðan dag!
Bloggar | 3.4.2007 | 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggar | 29.3.2007 | 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sheila vinkona mín bjó til tertu handa mér í dag, ógeð góða rjómatertu með súkkulaði, jarðaberjum og allskonar jukki...yndislegt bara...og ofan á tertunni var kerti í laginu eins og 4!!! Ææðislegt !!!
Sama yndislega veðrið ídag, hlýtt og sól, sumarið örugglega aaalveg að smella á
Reiddist ofsaleg ídag, litla stelpan hennar Sheila átti að fá að fara með afa sínum til Thailands í 3 vikur í nóvember, vantar þá bara vegabréf. Pabbi hennar, sem á heima í öðrum bæ og skiptir sér ALDREI af henni, hringir ekki einu sinni í hana, hvað þá sýnir áhuga á að hitta hana, sagði bara þvert nei, hann þekkti sko ekkert afann og vildi ekkert að hún væri að þvæla eitthvað á milli landa með ókunnugu fólki!!! Skrítið bara að afinn þekkir eiginlega stelpuna meira en pabbinn!!! Svona kalla bara ALLS EKKI!!! Honum er drullusama um stelpugreyið, en þarna ætlar hann andskotinn hafi það allt í einu að skipta sér af!!! Þetta barn er alls ekki í neinu uppáhaldi hjá mér, á satt að segja erfitt með að þola hana, en þetta er bara svo hræðilega skíttlegt!!!
Jæja, nóg um það, eigið ánægjulegt kvöld!
Knús!!!
Bloggar | 28.3.2007 | 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég fór ídag og fékk mér vefmyndavél, finnst ég vera algjör gella Ætlaði að fá mér eina bleika en að sjálfsögðu voru þær búnar, svo ég fékk mér bara svarta í staðinn...sem er í stíl við hátalarana mína
Ég og Sheila fengum okkur líka strigaskó í stíl fyrir daglegu gönguferðirnar okkar, nú vantar okkur bara sinn hvorn jakkann sem stendur Sparisjóður Ólafsfjarðar aftan á svo erum við good to go
Og hér er 14 stiga hiti í skugga, skínandi sól og Becca farin út að hjóla...farin út í góða veðrið líka...thank you and goodbye!
Bloggar | 27.3.2007 | 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Jæja, stóri dagurinn kominn, og engin sprenging, engir flugeldar, ég vaknaði ekki í morgun og leit öðruvísi út, himininn er ennþá blár á bak við hvítu skýin... Ekki það, það var eiginlega bara eftir fyrsta árið sem ég bjóst við einhverjum ósköpum á "ðö dei", gerðist ekki þá heldur
En, ég klappa mér á öxlina, brosi framan í spegilinn og hugsa með mér: "Sko mig, eitt ár í viðbót!"
Og takk fyrir hamingjuóskirnar stelpur, ef ég er heppin þá leyfir Erna mér að baka í dag, og svo hlýt ég að þjást af einhverju tímabundnu minnisleysi eða blackouti eða eitthvað, af því að mér var sagt þegar ég kom hingað í gær að ég væri búin að lofa að elda hérna í dag...man ekkert eftir að hafa gefið slíkt loforð en Erna er eins og Mogginn, allt satt sem stendur í henni...eða sem hún segir...
, þannig að á mánudaginn panta ég mér læknatíma til að kanna þetta minnisleysi mitt...
Og hér er eins og alltaf algjör dýragarður (og þá er ég ekki að meina bara út af dýrunum), yndislegt að koma hingað en jafngott að vita að ég get sko farið heim
Eigiði góðan sunnudag!
Bloggar | 25.3.2007 | 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Bloggar | 22.3.2007 | 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)