Er að fara á slökkviliðsstöðina á laugardaginn með familíunni, þeir eru með opið hús, bjóða upp á kaffi og þess háttar...maður má víst prófa reykköfun og allt...það væri það að fá að kafa inní reyknum með einum sætum og þurfa að "þreifa sig fram" Það er við svona tækifæri sem ég vildi vera eins og Birna
, það er að segja einhleyp
...
Nú, svo ætla ég að gera það mér til skemmtunnar, ánægju og yndisauka að sitja í rútu í nærri því 2 tíma með báðar yndislegu, stilltu stelpurófurnar mínar...ætla nefnilega að "skreppa í kaffi" til hennar Ernu, alveg kominn tími á að Nathalie Erna fái að venjast liðinu þarna uppfrá...þeim mun eldri sem hún verður þeim mun meira áfall verður þetta fyrir hana
Hún er svo aalveg með á hreinu hverja við erum að fara að hitta um helgina! Sko, Einar og Ívar og Birnu og ömmu og Ísak...svo stundum Ernu og Jenna líka! Vissi að vísu ekki að Birna og amma væru hjá Ernu en ég er nú alltaf sú sem er höfð útundan í þessari fjölskyldu, meira að segja Nathalie Erna fær að vita hlutina á undan mér...
Hún litla mín er svo sæt, hún segir stundum við pabba sinn: "Pabbi, ég eeelska þig, og Beccu...og Einar!" Aaaalgjör rúsína!!!
Sagði Beccu að hún fengi að vera ein heima hjá Andreasi um helgina meðan ég og Nathalie færum til Ernu, þá sagði hún strax: "Oh, þá vil ég fara til Micho og Nicme!" Hehe...dissa stjúpa sinn hvað???
Var að vísu bara að stríða henni, auðvitað fær hún að fara með! Elsku skoffín!
Kominn mikið meira en mánuður síðan Faðirinn með stóru effi hafði eitthvað samband, já, fyrir utan þegar hann sendi kærustuna til að reyna að fá að hafa Beccu Sá hluti af mér sem er sú sem lifði hann af er OFSALEGA fegin að þurfa ekki að hafa neitt samband við hann, en sá hluti af mér sem er mamma dóttur hans er drullu helv...reið út í hann fyrir að vera svona skíttlegur að hringja ekki einusinni í hana!!! Væri nú ekki til of mikils mælst ef hann gæti skriðið út úr rassgatinu á sjálfum sér og séð að hann á yndislega litla stelpu sem elskar hann MIKIÐ meira en hann á skilið og sem væri bara allt í lagi að hafa í fyrsta, öðru og þriðja sæti!!! FÓLK ER FÍFL, bara sumir meira en aðrir!!!
Jæja, þetta er svo sem ekkert sem ég get breytt, það eina sem ég get gert er að vera sú mamma sem hún á skilið svo að hún eigi þó allavega eitt foreldri sem er ekki sama!!!
En yfir í annað skemmtilegra, ég hafði samband við bókasafnið ídag og bauðst til að hjálpa til við að panta bækur á íslensku, og hún þáði hjálpina, vill fá slóða og innkaupalista yfir hvaða bækur mér finnist eigi að panta! Get ég komið mér í kontakta eða hvað?! Nú ætla ég sko heldur betur að skemmta mér, gvöööð hvað það er gott að fá að lesa íslenskar bækur, á íslensku!!! Ég elska þetta mál, þessa þjóð og þetta land!!! Ísland er best!!! Áfram Ísland!!!
Vakti manninn minn í morgun, sagði honum, á íslensku, að hann skildi drífa sig á fætur (hey, hann vill endilega læra málið ), þá sneri hann sér að mér, glotti og sagði skýrt og greinilega: "Ég skilur ekki íslensku!"
Bloggar | 22.3.2007 | 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)



Bloggar | 21.3.2007 | 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Jæja, þá er þetta búið...nú verð ég að fara að hætta að tala illa um Andreas í símann á íslensku svo hann heyri til...hihihi...hann fór á bókasafnið í dag og fékk lánað íslenskunámskeið á kassettu! Nú ætlar minn sko aldeilis að læra málið! Mér finnst það nú bara flott hjá honum, gaman að hann skuli hafa svona áhuga á minni tungu og mínu landi...yndislegt bara!!!
LITLI, LITLI frændi minn hann Ingi Stefán er 21 árs gamall ídag...TIL HAMINGJU!!! Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem þessi litli gutti hringdi í stóru frænku sína á hverjum einasta degi bara svona til að spjalla aðeins!
Jeminn, hvað maður er að verða fullorðinn eitthvað!!!
Fór út að labba í morgun líka, finnst ég vera geggjað best! Fór svo í göngutúr með elskunni minni niðrí bæ líka, fórum og keyptum okkur steikarpönnu! Ánægð með það, mig vantaði svo eina venjulega sem viðbót við járnpönnuna mína! Mikilvægt að eiga almennileg eldhúsáhöld!!!
Á morgun ætla ég að fara út í kjötbúðina hérna og kaupa lambalifur, síðan ætla ég að elda handa fjölskyldunni minni ekta lifrabollur með kartöflum og brúnni sósu alveg eins og amma gerði hérna í denn...mmmmmmm gott!!!
Becca fór loksins í skólann í dag, ennþá með hálsbólgu greyið en amk hitalaus í nokkra daga núna...nú getur hún LOKSINS fengið að prófa hjólið sem við keyptum handa henni um helgina!
Bloggar | 21.3.2007 | 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ég og vinkona mín fengum svona heilsukast í gær, okkur leiddist svo við ákváðum að fara út í göngutúr! Sagt og gert, hún kom með stelpuna sína og skildi hana eftir hjá Andreasi með okkar stelpum og svo fórum við á stað. Nema hvað, það fer allt í einu að snjóa svona gríðarlega að göngutúrinn endaði korteri seinna á pöbbnum með sínhvora kók
Eeen...í morgun bættum við það heldur betur upp, fórum í eins og hálfs tíma langann göngutúr í skínandi sól...nei, ég er ekki að grínast, þetta er satt!!! Svo fórum við heim og fengum okkur morgunmat, og á morgun ætlum við að gera þetta aftur, þetta var bara yndislegt, passar svo fínt að rölta til dagmömmunnar með Nathalie Ernu og halda svo bara áfram að rölta enda margt fallegt að sjá hér um kring.
Nú ætla ég að fylgja fordæmi Ernu og fara og setja í þvottavél...var að taka fram stærri föt fyrir Nathalie Ernu, þarf svo að fara að versla buxur handa Rebeccu, það er algjört met hvað þessi börn stækka hjá manni. Fann svo falleg föt í gær sem ég hafði misst af að nota fyrir Nathalie, þá glotti maðurinn minn, hristi buxnaskálmina og sagði: "Búinn að redda því!" Fyndinn þessi
Bloggar | 20.3.2007 | 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Mmmm...komin helgi! Og nú er komið að greyið Beccu minni að vera lasin Ekkert mikið, en nóg til að hún fékk að vera heima ídag, skinnið! En það er allt í lagi af því að á morgun fær hún nýtt hjól!!! Fann notað hjól skítbillegt á netinu, voða flott!
Við hjónin ákváðum að vera óábyrg og barnaleg og keyptum okkur tölvuspil í gamla playstationið okkar, og að sjálfsögðu þá alveg valta ég yfir hann í því
Jæja, nenni ekki að skrifa meira, krakkarnir tuða og tuða og fikta og vesenast, alveg i essinu sínu í kvöld...
Eigiði yndislega helgi öllsömul!
Bloggar | 16.3.2007 | 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)


![]() |
Snoop Dogg handtekinn í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.3.2007 | 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Glæsilegt!!! Rétt lag vann, uppáhaldið mitt, mæ ædol Ola Salo vann í sænska Júróvisjón í kvöld!!!
Ég og Becca höfðum partí hérna heima, ég ýldi og gólaði, þurfti að vísu að sannfæra Beccu um að hún mætti það alveg líka, þótt það væri komið kvöld...sagði henni að þegar það sé laugardagur og Júróvisjón eða hokkí í sjónvarpinu þá megi maður hafa hátt...hún var ekki alveg að trúa mér strax litla skinnið, minnti mig soldið á Einar B. og háa grasið En svo á endanum var hún farin að hafa alveg jafn hátt og ég, og náttúrulega sjónvarpið í botni, fáum örugglega varanlegar heyrnarskemmdir eftir þetta maður!
Yndislegt!!!
Heja Sverige!!! Ég ELSKA The Ark!!! Og Ola Salo er geggjað cool!!!
En, ekki trúa mér, sjáiði bara sjálf
http://www.youtube.com/watch?v=6oKXIAqwujo
Bloggar | 10.3.2007 | 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Jæja, mér er farið að líða mikið betur af pestinni, en þá er komið nýtt vandamál! Það er búið að hóta mér með heimsókn í maí, svo nú verð ég að gerast flóttamaður...er að hugsa um kannski að sækja um skjól í Írak eða Íran eða eitthvað...allt er betra en að vera hér ef rætist úr þessu...
Kominn föstudagur, maðurinn og eldra barnið farin út í skóg að byggja kofa eða hvað það er sem þau eru alltaf að gera þarna, éta lirfur eða eitthvað...litla að horfa á Tímon og Pumba og leyfir mér alveg að vera í friði í bili, svo ég fæ barasta að sitja hérna og lesa blogg og hlusta á tónlist...er td núna að hlusta á Franska lagið, man einhver eftir því? Eðal tónlist!
Jæja, ætli ég verði ekki að fara að taka til í eldhúsinu, er að fara að elda kjúkling í ofni og ÞOLI bara ekki að elda þegar það er ósnyrtilegt í eldhúsinu hjá mér! Má alveg vera allt í rusli í allri íbúðinni, en eldhúsbekkurinn skal vera tómur þegar ég elda!!!
Untill next time...
Bloggar | 9.3.2007 | 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ég verð nú barasta að viðurkenna að ég er alls ekki jafn dugleg að skrifa hérna og þið hinar...er svo ofsalega upptekin við að prjóna lopapeysu á manninn minn, bera á borð 3 rétta máltíðir, þrífa og þvo upp...og svo er ég alveg svakalega morgunhress líka, 45 í skóstærð og 1.90 á hæð...
Nei, svona í alvöru þá fór ég frá manninum mínum um helgina, gisti með stelpurnar hjá góðri vinkonu, horfðum á alla þá sem fengu einn sjens í viðbót að keppa í úrslitum söngvakeppninnar hérna úti, ýldum og góluðum og létum eins og svín...vorum svo vakandi fram eftir öllu talandi um karlmenn og notagildi þeirra Maðurinn minn ekkert smá heppinn að þurfa ekki að vera með, honum finnst svona umræðuefni alveg hræðilega vandræðaleg...gleymi aldrei hversu hratt hann hljóp út úr eldhúsi þegar við sátum hérna nokkrar og konan hans hélt því fram að karlmenn ættu að vera fallegir, halda kjafti og hafa stórt undir sér
Stundum á ég það til að vorkenna honum fyrir að vera giftur mér, en þá man ég alltaf að það er ég sem bý með karlmanni og getur það orðið verra...?
Annars er ég hálfgerður karlmaður núna, er eitthvað lasin og vorkenni mér voðalega...læt það samt ekki hindra mig frá að fara út og fá mér kaffi með vinkonu minni sem ég hef ekki hitt lengi, eða sitja í strætó í rúman klukkutíma til að fylgja dóttur minni á aikido æfinguna...nei, ég er nú kannski bara voða kona samt, eða hvað? En vorkenni mér voðalega þegar ég hef tíma til þess...
Er nýbúin að lesa bókina sem kom á undan Da Vinci lyklinum, Englar og Djöflar, hryllilega spennandi og svo yndislega mikið af sögulegum staðreyndum líka, frááábær bók...er núna að lesa Vetrarborgin eftir Arnald Indriða, á íslensku, alveg frábært! Eina bókin eftir hann sem var til á bókasafninu á íslensku...allt of fáar íslenskar bækur í boði hérna...og svo eru þeir hættir að hafa Moggan og hvaðan á ég nú að fá minn heilaga sannleika, ég bara spyr!
Nú ætla ég að fá mér te og verkjatöflu og skríða uppí rúm og vorkenna mér aðeins meira, sé ykkur!
Bloggar | 6.3.2007 | 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég keypti nýtt rúm handa Beccu í gær, hátt rúm með skrifborði undir svaka flott...nema hvað að rúmið er notað og frá IKEA...engar leiðbeiningar með og vesen...það er gjörsamlega ómögulegt að setja saman IKEA húsgögnin á leiðbeininga...IKEA er þekkt út um allan heim fyrir þetta fyrirbrigði! En viti menn, snillingunum tókst þetta, og meira að segja áður en hún kom heim úr skólanum...
Nú er vandamálið bara það að rúmið er sem sagt MJÖG hátt og....kallinn sem við keyptum það af fann ekki pinnana sem eiga að vera stiginn upp !!! Hann ætlaði nú samt að finna þá og koma þeim til okkar, og hann fær ekkert borgað fyrir rúmið fyrr en hann er búinn að því...eeen þangað til þurfum við hjónin að LYFTA elsku "litlu" stelpunni okkar (1,30 á hæð, 28 kíló!!!) upp og niður úr þessu blessaða rúmi...þarna spörum við okkur náttúrulega heilt mánaðarkort í ræktina, enda er IKEA mjöög hagstætt val...
Ídag ætla ég svo að halda áfram að þykjast eiga líf, ætla að færa allar mubblurnar inni hjá Beccu minni svo að það verði meira pláss, henti líka loksins út gömlu ljótu hyllunni sem hún var með í gær...svo ætlum við stelpurnar að skemmta okkur við að setja saman Barbie húsið hennar sem er búið að liggja í kassanum aaallt of lengi út af plássleysi...
En fyrst ætla ég að fá mér graut í morgunmat!
Bloggar | 2.3.2007 | 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)