Blogg blogg blogg :)

Sko, when it rains it pours LoL

Mig langar bara að segja ykkur hvað ég á yndislegar dætur! Við fórum út í smástund í kuldann og þær voru svo góðar við hver aðra allar þrjár, hjálpuðust að og hlóu saman...alveg frábært, það gleður svo gamalt móðurhjartað þegar börnin manns eru svona ljúf Heart 

Nú svo fórum við og versluðum það sem vantaði fyrir matinn sem Becca er búin að panta, svínalundir, fylltar með osti og hvítlauk, bakaðar í ofni og svo hrísgrjón og bearnaisesósu með, og svo að sjálfsögðu fullt af nammi! Grin Og svo af því að þær eru svo yndislegar þessar stóru mínar þá fengu þær svo að velja Hannah Montana ilmvatn handa hvor annarri...það sem var sætast við það var að af þreim tegundum sem voru til var bara eitt eintak eftir af þessu bleika. Haldiði ekki að hún Nathalie Erna mín velji síðasta bleika ilmvatnið þá handa systur sinni!!! Þess ber að geta að bleikur er uppáhaldslitur hennar Nathalie númer sko 1, 2 ooog 3!!! Að svona lítil stúlka skuli geta verið svona svakalega óeigingjörn og hugulsöm finnst mér vera gott merki um hversu rosalega vænt dætrum mínum þykir um hvor aðra, maður fær nærri því tár í augum bara!!! HeartHeart

Langaði bara að deila þessu með ykkur öllum svona, smá ljós í skammdeginu Smile

Knúúúús


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Takk fyrir þetta elskan, þær eru yndislegar eins og mamman

Jónína Dúadóttir, 31.10.2009 kl. 17:30

2 Smámynd: Anna Guðný

Algjörar dúllur heyri ég.

Anna Guðný , 1.11.2009 kl. 00:44

3 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Þær eru súkkulaðisnúðarnir mínir

Jóhanna Pálmadóttir, 1.11.2009 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband