Back in black :)

Rosalega er langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna!

Ekki það, það gerist svo sem ekki mikið í mínu leikriti, ekki þannig...var í Linköping og hitti Ernu og everybody sem var bara yndislegt, er nú að bíða eftir að hún fari að birtast hjá mér Tounge 

Fékk óvænta heimsókn í gær, tengdapabbi bara birtist hérna með fallega úlfinn sinn (jamm, ég sagði úlf, dýrið er 3/4 úlfur, 1/4 hundur), og næst yngstu dóttur sína, bara gaman að því enda komin ein 3 ár síðan við hittum kallinn síðast og litlu stelpurnar hafa aldrei hitt afa sinn...þetta var bara snilld! Nathalie leist bara vel á afa gamla, enda kom hann með bæði nammi, tyggjó og kökur með sér, nú og svo var nú úlfurinn mjög vinsæll líka  Smile Skelli inn mynd af honum seinna!

Fór svo í kaffi hjá gömlum félaga þegar tengdapabbi var farinn aftur, tók Beccuna mína með mér, hún kom heim eftir vikudvöl hjá pabba sínum í gær svo ég var ekkert á því að skilja hana eftir heima Heart
Nú, það var bara gaman að hitta þennan mann, mjög skemmtilegt og Becca fékk að æfa sig aðeins í íslenskunni Wink

Jæja, ætlaði að skrifa aðeins meira hérna en svo kom lítil dama og skreið upp í fangið á mömmu sinni og vildi ýta á fullt af tökkum svo það er víst best að ég sinni henni svolítið í staðinn LoL

Eigið góðan dag öllsömun Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hæ litla systir, gaman að fá smá lífsmark frá þér

Jónína Dúadóttir, 31.10.2009 kl. 13:46

2 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Hahaha, já finnst þér ekki?

Jóhanna Pálmadóttir, 31.10.2009 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband