Nemesis

Ég á mér minn persónulega nemesis. Þetta er maður sem ég bjó með í fjölda ára og eignaðist barn með. Þessi sambúð var í sjálfu sér eitt langt helvíti á þessari jörð, að kalla þennan mann fjandan sjálfann væri að lítillækka kölska og í öll þessi ár síðan hef ég verið hrikalega hrædd við þetta kvikindi! Samt hef ég umgengist hann, ég hef boðið honum og fjölskyldu hans í mat, ég hef farið á kaffihús með honum og dóttur okkar, ég hef staðið upp á móti honum til að verja dóttur okkar, alltaf jafn hrædd, en gert það samt.

Ég hitti þennan mann í gær, ég fór með dóttur okkar í heimsókn til hans af því að hann er meira eða minna dauðvona, hann berst við krabbamein sem er ekki hægt að skera burt, svarar ekki lyfjameðferð og nú er hann nýbyrjaður í geislameðferð, sem er bara síðasti séns. Þessi risastóri, háværi og ógnvekjandi maður er skroppinn svo saman að ég er hávaxnari en hann. Hann er ringlaður, gleyminn og almennt ruglaður, pínulítill og aumur og ég hef á tilfinningunni að ég gæti blásið hann um koll. Þarf ég að segja að þetta er alveg ótrúlega skrítið allt saman? Ég veit ekkert hvernig mér á að líða með þessu, hluti af mér fær bara gömlu viðbjóðstilfinninguna sem ég hef fengið af þessum manni síðan við vorum saman, annar hluti af mér vorkennir þessu hræi alveg hræðilega. Nú og svo finn ég svo til með litlu dömunni minni, því að þó hann hafi aldrei reynst henni vel þá hefur alltaf verið smá von, sem hverfur þegar hann deyr. Sem er voða sorglegt fyrir hana.

Fyrir utan allt þetta er líf mitt eintóm hamingja, stóra ástin í lífi mínu loksins kominn heim til mín, krakkarnir elska hann, hvaða tilfinningar ég ber til hans er hægt að sjá á hvernig ég ljóma þegar ég horfi á hann, og ég held að hann sjálfur sé bara yfir meðallagi ánægður með að vera kominn til okkar InLove

Ég er alveg búin að missa alla von um að fá að flytja heim fyrir jól, ekkert búin að heyra enn, og er svona smám saman að vinna í að sætta mig við að halda jól í þessari litlu, óskreyttu íbúð, og ég held að ég sé alveg að verða sátt við það, ég fæ að halda jól með ástinni minni og börnunum og það er bara betra en jólin hafa verið undanfarin ár!

Hafiði það gott á góðum degi elskurnar! Heart


Þetta er bara allt í áttina... :)

Ég er bara farin að vera svaka dugleg við þetta blogg, bara alveg að verða stolt af sjálfri mér!!! LoL

Hér eru stelpurnar að passa sig vel á að taka út alla sjúkdóma fyrir jól, Nína var með hita í 2 daga og ég er ekki að grínast, krakkinn fór í sturtu 15 sinnum á dag...sturtan hérna er svo ofur-aðgengileg að hún þarf enga hjálp við þetta, heldur heyrir maður bara allt í einu að vatnið rennur og stuttu seinna heyrir maður: "Maaaaammmaaaaaa, mig vantar handklæði!" LoL Nú, minsti grísinn, hún Lára er sennilega komin með hlaupabólu, en er samt alveg hitalaus...ég veit bara ekki hvað þetta getur verið annað og konan á heilsugæslunni var alveg sammála. Hún fer samt bara í sturtu 7 sinnum á dag með Nínu hahahaha

Í dag tók ég enn eitt skref í átt að bata, ég fór á fund til að hitta konu sem heldur í sjálfshjálparhóp fyrir konur sem hafa lifað við andlegt og líkamlegt ofbeldi. Ég þáði plássið í þessum hóp um leið og mér var boðið það af því að ég veit að ég þarf á því að halda, svo í dag var bara verið að fara í gegn um smáatriðin. Þetta er alveg frábær hugmynd hjá þeim og maður fær meira að segja aðstoð með barnapössun hjá þeim svo maður geti verið með þótt maður sé einstæður með börn, sem ég jú er í augnablikinu, eða já grasekkja eiginlega bara  Smile

Hvað meir...jú, íshokkíliðið mitt, HV71 tókk áttunda sigurinn í röð í kvöld, sem gerir mig mjöööööög ánægða SmileGrin

Það styttist í fyrsta fundinn fyrir skilnaðinn, það á að meðhöndla umsóknina um forræðið yfir börnunum sem ég sótti um, svo og búskiptin, svo nú fer sá sirkus að rúlla af stað sem er gott af því að þá styttist líka í að það klárist! 

Það styttist í jólin líka sem mér finnst alveg meiriháttar gott!!

Þannig að það er allt á réttri leið í mínu lífi!!! Smile


Hmmm.....

Í dag var skrítinn dagur! Ég fékk að vita að barnsfaðir minn, pabbi þeirrar elstu, er með krabbamein...mér var sagt að hann ætti ekki nema kannski 3 mánuði eftir ólifaða...seinna í dag talaði ég við ættingja hans sem kannaðist ekkert við að hafa heyrt neitt um að það væri stutt eftir, en gat staðfest þetta með krabbann..

Ég veit ekki alveg hvernig mér á að líða með þessu....þessi maður er virkilega vondur maður, það er í alvöru ekkert gott í honum og það eina góða sem hann hefur nokkurn tímann komið til staðar er dóttir okkar...þessi maður kom svo illa fram við mig að ég var hrædd við hann í fjöldamörg ár, hrædd og hataði hann samtímis....það er nóg að ég hugsi til hans til þess að mig langi til að fara í sturtu og skrúbba af mér húðina....en þetta er samt pabbi dóttur minnar og ég veit að hún á eftir að verða ofsalega leið ef þetta er satt og hann hrekkur upp af...

Vandamálið er að ég veit ekki hvað ég á að segja við hana...hún er búin að frétta út í bæ að hann segðist vera með krabba en hún og ég ákváðum frekar snögglega að þetta væri bara hann að fiska eftir athygli, það væri nefnilega alveg eftir honum. Reyna að ná í smá vorkunnsemi frá fólki...

Ég er búin að vera að brölta með þetta í allan dag...sem betur fer á ég alveg ótrúlega skynsaman mann sem er búinn að vera mikill stuðningur í þessu öllu, það er svo ómetanlegt að þurfa ekki að standa einn með svona hluti...

Ég er allavega búin að ákveða að ég ætla að reyna að hlera aðeins, heyra hvað ættingjar vita og svoleiðis, ég var að hugsa um að hringja í hann en eftir smá spjall við skynsama manninn ákvað ég að það væri ekki góð hugmynd, ég treysti kallinum ekki baun og veit ekkert í hvernig ástandi hann er...

Ég hugsa að ég taki þetta bara með þolinmæðinni og sjái til...þetta verður allt eins og það á að vera, karma og svo framvegis.

 Eeeen fyrir utan það, þá gengur líf mitt sinn vanagang, ég hef ekkert heyrt um íbúðina enn, en þetta kemur allt, all in good time...og svo líður vonandi að því að ég fái að hitta yndislega manninn minn..sem verður ekki lítið spennandi eftir 19 ár!!! InLoveHeart Ég veit alveg að góðir hlutir gerast hægt, þeir góðu hlutir sem ekki gerðust hægt í mínu lífi voru ekkert svo góðir í lengdina þannig að þetta er bara gott merki...en alltaf erfitt að vera svona langt frá hvort öðru....thank god for internet segi ég bara!!! 

Ég er þakklát fyrir það líf sem ég lifi í dag, ég er þakklát fyrir yndislegu börnin mín...öll 10 stykki Grin, fyrir að vera svo ótrúlega heppin að loksins finna HANN, manninn sem ég vil verða gömul með...þakklát fyrir að eiga margar yndislegar systur sem passa systur sína, fyrir að eiga ótrúlega góða vini og fyrir að fá að lifa edrú og finna til!!! Ég er sannarlega ótrúlega rík manneskja!!!


Happy endings

Fyrir ansi mörgum árum síðan kynntust strákur og stelpa! Heitar tilfinningar uppstóðu þeirra á milli. Strákurinn var drengur góður og kom fram við elskuna sína eins og hún væri eina konan í heimi, sýndi henni ómælda ást og alúð. Stelpan, ung og óreynd, illa upp alin og frá slæmu heimili, hafði ekki vit á að kunna gott að meta, heldur hræddist hún allar þessar tilfinningar og hvað hann var almennilegur við hana, enda ekki vön slíku. Hún lét hann flakka og hélt áfram út í heim að eltast við aumingja sem gætu troðið hana niður í svaðið í staðinn.

Mörgum árum seinna náðu strákur og stelpa saman aftur. Stelpan var nú loksins farin að sjá að hún ætti alveg skilið að væri komið vel fram við hana og ákvað að hafa sig alla við til að leyfa stráknum að gera einmitt þetta. Og svo lifðu þau hamingjusöm til æviloka!

Endir


Sko mig :)

Komin aftur bara, og samt ekki ár síðan síðast!!! LoL

Getur kannski verið þannig að ég hafi fengið innblástur úr óvæntri átt og þess vegna hafi ég eirð í mér að byrja að skrifa aftur? Hmmm....já ætli það ekki bara! Smile

Það er margt sem ég hef gaman af sem ég hef lagt á hylluna undanfarin ár vegna tímaleysis og þreytu, ég er t.d. eiginlega alveg hætt að teikna og mála, ég skrifa sjaldan mm. Svona almennt skapandi hobbí sem gáfu mér mikið einu sinni, hjálpuðu mér mikið þegar ég var á myrkum stað í mínu lífi en sem ég hef ekki haft löngun til að gera í nokkur ár...maður þarf að hafa þennan blessaða innblástur sem ég minntist á áðan, og hann hefur ekki látið á sér bæra langalengi. 

En nú er ég laus, komin út í fríska loftið og þá kemur allt þetta líka!! Smile

Það er mikið að gerast í mínu lífi núna, mest jákvætt! Ég fór frá manninum sem ég hef verið gift í mörg ár, loksins, eftir árabil af neikvæðni, meðvirkni og andlegu ofbeldi og núna þegar ég er laus við hann get ég bara fyrir mitt líf ekki skilið hvernig ég hafði orku í að vera þarna svona lengi!!! Þvílíkur ótrúlegur munur!!! Ég er í lánaðri íbúð, má ekki segja neinum hvar ég er, má ekki bjóða neinum í heimsókn og þarf að fara frekar langt í strætó til að fara með krakkana á morgnana...en þetta er SAMT svo óendanlega mikið betra en lífið sem ég skildi eftir!!! Og hvað gerir hann? Hann situr í stóru 149 fm íbúðinni okkar sem er rétt hjá skólanum, notar svefnherbergið (þar sem hann er með tölvu, sjónvarp, dvd spilara, græjur og tölvuspil), eldhúsið og baðherbergið! Það eru semsé 2 stofur, 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi sem standa ónotuð...og honum finnst bara ekkert að því! Þetta hefði ég átt aaaðeins auðveldara með að sætta mig við ef hann hefði þá haft dætur sínar að minsta kosti aðra hverja helgi, eða jafnvel aðra hverja viku....en hann hefur börnin EKKERT!!! EKKI NEITT!!! Hann spyr ekki einu sinni eftir þeim!!! Ég, alltaf að reyna að gera rétt, hef samt farið með stelpurnar til hans svona einu sinni í viku og verið þar með þeim í smá tíma...en ekki ímynda ykkur að hann sé að umgangast þær þá heldur! Nei, þær sitja og lita á meðan hann situr með mér í eldhúsinu, drekkur kaffi og sýnir mér fræpöntunarlista! Og fer í risafýlu ef ég sit með símann minn í staðinn eða veiti ekki fræjunum þá athygli sem honum finnst ég ætti að gera! Þannig að ég er alveg hætt að fara þangað núna, ég er farin að hlýða ráði tengdapabba, þ.e.a.s. pabba hans, og segi við stelpurnar þegar þær spyrja að því miður, pabbi spyrji bara ekkert eftir þeim og við verðum bara að bíða og sjá til! 

Annað sem hann skemmtir sér við að gera er að fylgjast með bankareikningnum okkar, þeim sameiginlega...hann er hingað til búinn að ná að stela frá mér samanlagt ríflega 7000 SEK, sem er alveg slatta peningur, vel yfir 100 þús ISK! Þetta eru peningar sem ég þarf á að halda til að sjá fyrir börnunum hans!!! Og þessu var ég gift!!! 

En samt, þetta er allt á réttri leið, búin að sækja um skilnað og forræði yfir börnunum og er að slást fyrir að fá íbúðina aftur...þetta kemur, ég get verið þrjóskari en andskotinn þegar á þarf að halda!!! DevilTounge

Jæja, nú er ég búin að hella úr skálum reiði minnar, ég skal leyfa ykkur sem nennið að lesa þetta að fylgjast með Smile

Næsta færsla fær að fjalla bara um það jákvæða sem er að gerast í mínu lífi, bíði spennt hehehe


Ég lifi enn... ;)

Rétt kíkti inn hérna og áttaði mig á að ég hef ekki bloggað síðan einhverntímann í fyrra...!!!

Þetta er náttúrulega bara alls ekki í lagi og alveg kominn tími á að gera eitthvað í þessu, enda allt að gerast í mínu lífi og góður vinur minn benti mér á um daginn að það gæti bara verið fyndið að skrifa um eitthvað af þeim farsa sem líf mitt er í augnablikinu...alveg eins gott að hafa bara gaman af og sjá húmorinn í hlutum Wink

Ég ætla samt ekki alveg að taka mér tíma til þess akkúrat núna, en one of these days very soon...

Untill then...

may the force be with you ;)


Ammmæli, slúður og máttarstólpar...

Jæja, þá eru loksins veislustönd og kökstúss búið, mikið er ég fegin...pínu tiltektir eftir en geri það bara þegar ég nenni...

Tengastrumpur kom og var með nýju kærustuna með sér, yndisleg kona í alla staði, líkaði mjög vel við hana, og stelpurnar bræddu hana gjörsamlega eins og við var að búast. Þau tóku líka hundana með sér, eða réttast sagt hundinn og úlfinn, tengdastrumpur á nefnilega dýr sem er 80 prósent úlfur og 20 prósent hundur, alveg ótrúlega fallegt, góðlynt og yndislegt skinn, og ekkert smá stór!!! Set inn mynd við tækifæri SmileHeart Nú svo kom fullt af öðru fínu fólki, hún er vinsæl litlan mín Wink og síðasti gesturinn, sem var reyndar ekki gestur heldur fjölskyldumeðlimur (Jojo hans Einars) fór ekki fyrr en bara seint, yndislegt að hafa hana hérna!!! Heart

Svo kom slangur af fólki í gær líka til að halda upp á dömuna, meiri tertur og kökur og vesen, bara kúl Smile Sú stutta var að vísu því miður ekki alveg í formi, hélt að hún væri jafnvel að verða lasin greyið, en hún er nú mikið skárri í dag svo þetta hefur bara verið þreyta eftir stóru veisluna sjálfsagt. Og svo reyndi greyið amma hennar að hringja í allan gærdag skildist mér en það var greinilega ehv vesen með gemsann minn og ég var að tala í heimasíman svo þegar mamma loksins komst í samband við okkur var litla skottið dottin útaf Frown Ætla að leyfa henni að bjalla í ömmu sína aðeins í dag bara í staðinn.

 Nóg um afmælið, næsta efni er illskeytt slúður frá viðbjóðslegum krakkakvikindum hérna í hverfinu:

Elsta dóttir mín kom heim úr skólanum í gær með þær fréttir að skólasystir hennar ein hafi spurt Beccu mína hvort hún geri "hitt" með pabba sínum. Hvað er að börnum, eiga þau einu sinni að vita á þessum aldri hvað það fyribæri er??? Þetta var stelpa í 4. bekk sem spurði en þetta kom víst frá einhverjum öðrum. Ég hringdi strax í skólastýruna og spurði hvað hún hugsaði sér að gera í málinu, þetta væri svo langt langt langt utan fyrir allt sem ég gæti hugsað mér að láta bjóða dóttur minni uppá, það væri svo mikið vesen í kringum pabba hennar fyrir að hann væri bara viðkvæmt mál fyrir henni og svona viðbjóð vildi ég ekki sjá!!! Nú svo þar að auki gæti þetta náð eyrum einhvers fullorðins og við hreinlega lent í að vera kærð ef einhverjum dytti nú í hug að það væri ehv til í þessu, flestir halda líka að Andreas sé pabbi hennar og mig langar nú ekkert sérlega til að verði ehv farið að rannsaka meint sifjaspell í minni fjölskyldu, ég er ekkert að ímynda mér að það sé sérstaklega gaman að lenda í því hvorki fyrir okkur fullorðna fólkið hvað þá litlu krakkana!!! Angry Sko það var slæmt þegar hún var lögð í einelti út af gleraugunum, mér er illa við að henni sé strítt ef hún er ekki í "réttum" fötum (og fyrirgefðu, af hverju á einhver annar en hún að leggja ehv mat á hvað er rétt föt fyrir hana) en þetta er bara á svo allt öðru plani sko, þetta er engan veginn ásættanlegt og ef skólinn leysir ekki þetta mál í dag eða seinast á morgun og veiðir upp þann sem bjó þetta slúður til, þá er hún bara heima það sem eftir er af þessari önn!!! Hún er að fara að byrja í miklu betri skóla, International English School, í allt öðru hverfi í haust og mér er alveg sama þó ég valdi mayhem í þessum skóla, Jóhanna is seriously pissed off núna!!! AngryDevil

En svona on other notes, stólpin ég er að fara að halda hérna kynningarfund fyrir heimili og skóla í kvöld með Sheilu vinkonu og Jakob. Við ætlum að reyna að koma þessu félagi á laggirnar aftur hérna í Jönköping, sem er bara jákvætt. Svo er stórfundur í Stokkhólmi um helgina sem við förum á líka, alla helgi, engin börn, hótel borgað...svo eru fundir frá morgni til kvölds, en það er bara kúl!!! SmileCool Hlakka til!!!

Jæja, Birna, er þetta ekki nóg í bili? LoLTounge Rigning og grátt hérna í dag, annað en í gær, þá var skínandi sól og hiti, undarlegt veður hérna, hefur örugglega ehv með öskuna frá Íslandi að gera hahahahaha LoLGrin

Óska ykkur góðs dags þrátt fyrir veður og annað


Hér er perri, um Ernu, frá Birnu, til Ninnu :)

Einhver var að kvarta yfir að ég væri eitthvað ósýnileg á blogginu, ég benti á að líf mitt sem 3 barna móðir í Álfheimum væri nú kannski ekki svo spennandi að það væri skrifandi um það daglega en jæja, hér er ég nú samt enda kominn mánuður síðan síðast... Tounge

Og hvað er þá að gerast í mínu lífi? Jú, ég skal sko segja ykkur það: nákvæmlega ekkert! hahaha :) Nei, segi bara svona, það gerist hellingur á hverjum einasta degi, svona lítil gullkorn sem eru mikils virði fyrir mig persónulega en sem eru kannski ekkert til að skrifa um fyrir aðra að lesa Smile Stelpuskottin mín eru alltaf að segja eitthvað skondið eða gera eitthvað alveg frábært og eru mér til ómældrar ánægju svona yfirleitt, enda eru þær gersemirnar mínar HeartInLove

Nú svo í gær og í dag ef ég búin að vera að snúast í að þrífa þessa risastóru íbúð mína og undirbúa fyrir afmælisveisluna hennar Nínu Láru, hún á nebbnilega ammæli á mánudaginn og verður sko alveg tveggja ára, þó hún virðist vera mikið eldri elsku daman mín Wizard Í dag var ég svo mikil súpermamma sko að ég eldaði vorrúllur, hrísgrjón og bearnaisesósu oní mig og ungana, og svo tók ég mig til og bakaði muffins, skúffuköku og svampbottna, gott að vera búin með þetta svona daginn áður til tilbreytingar. Bara hnallþóran eftir en hana geri ég ekki í dag.

Svo ætlar víst tengdapabbi að birtast hérna upp úr hádegi á morgun, með gjöfina sem ég sagði honum að kaupa, strigaskó á dömuna. Hann er nú svo skynsamur að hann vill koma áður en veislan byrjar svo hann fái að hitta barnabörnin sín í ró og næði, þetta er nú bara í annað skiptið sem hann hittir þær.

Og svo veisla á morgun, verð nú eiginlega að viðurkenna að ég nenni þessu varla, en maður lætur sig nú svo sem hafa það, allt fyrir börnin eða hvað? Að vísu þá er þetta mestmegnis fólk sem ég hef gaman af að umgangast, litlan á náttúrulega enga vini enn þannig lagað séð og enga ættingja til að tala um svo þá býð ég náttúrulega þeim vinum mínum sem henni líkar við Wink Virkar fínt fyrir okkur báðar! Smile

Jæja, farin að klára kökustandið, see ya all ef ég lifi þetta af LoL


Hvenær koma nunnurnar?

...er spurning sem ég fékk svar við áðan LoL, nunnurnar koma í dag! Grin Sat nefnilega inni á öppna förskolan sem er svona eins og leikskóli þar sem foreldrar eru með börnunum sínum, þeas, við mömmur sitjum og drekkum kaffi og þykjumst fylgjast með krökkunum, svo er ein fóstra sem hjálpar þeim að mála oþh. Anyway, þarna sit ég í mestu makindum og horfi út um gluggann og er að ræða um daginn og veginn við indverska vinkonu mína þegar hún allt í einu segir: "Heyrðu, eru þetta nunnur?" Ég lít þangað sem hún bendir og mikið rétt, þarna labba 3 nunnur framhjá! Nú er kaþólsk kirkja hér í bæ en ég verð að viðurkenna að nunnur hef ég aldrei séð og kirkjan sem þær hurfu inn í, Råslättkirkjan, er ekkert sérstaklega kaþólsk LoL. Nú og svo nokkrum mínútum eftir að nunnurnar hverfa sé ég lögguna á vappi fyrir utan hahaha, eflaust að leita að nunnunum. Við ákváðum nefnilega hið snarasta að þetta væri allt tengt og hefði sennilega samband við manninn sem var að skipta um rúðu einhverstaðar inni í þessu stóra húsi. Sennilega hefðu nunnurnar brotist inn í bókasafnið, farið inn gegnum rúðu, það voru nefnilega bækur líka á víð og dreif um gangstéttina þarna fyrir utan. Nú nunnurnar fóru svo inn í kirkjuna til að leita sér hælis á flótta undan lögreglunni. Það tókst nokkuð vel, því hálftíma seinna er sama lögga enn á vappi að leita að einhverjum að því er virtist. LoL Elementary, dear Watson! LoL
Til að toppa þetta allt sáum við Andreas þegar við vorum á leið heim, eina bókina enn, liggjandi í blómabeði. Staðsetningin var samt ekki það athyglisverðasta við þessa bók, heldur titillinn sem hún bar: "The Nigger of The Narcissus". Hahahaha ég segi bara, þvílíkur dagur!!! LoL

Og svona on other notes, þá á ég 7 ára afmæli í dag! Wizard

Have a nice day, I will!


Geeeeeisp...

Hef ekki nennt að skrifa neitt hérna langa lengi, varla farið inn og lesið einu sinni...hvaða kæruleysi er þetta í konunni? LoL

Hef verið að lesa um "náttúruhamfarirnar" á Íslandi í sænskri pressu, svona mér til gamans...alveg er fyndið hvað þetta er yfirdrifið og dramatískt hjá svíunum! Eitt stærsta blaðið náði sambandi við einhverja konu þarna heima, íslenska, sem bjó þarna nálægt eldstöðvunum og svo gátu lesendur netbleðilsins spjallað við þessa konu live...þið hefðuð átt að sjá spurningarnar...einn var mas að fræða konugreyið á því hvað aska væri hættuleg...sure, okkur vantaði svo einhvern nafnlausan svía á einhverjum spjallþræði til að fræða íslensku þjóðina um hættu þess að anda að sér ösku LoL
Nú, svo horfði ég á eitthvert svona myndskeið á sama sænska blaði þar sem þulan með titrandi röddu segir frá hvernig fólk var vakið um miðja nótt og sagt að samstundis flýja heimili sitt, úti mætti fólkinu öskuregn og þykkur, eitraður reykur! hahaha LoL Enda líka er nóg að það komi smá snjókoma hérna til þess að strætókerfið fari í steik og tíðni árekstra aukist til muna. Svíar eru ekkert sérlega rólegt fólk og ég get ekki ímyndað mér fárið sem yrði hérna í Suður Svíþjóð ef það myndi nú koma smá jarðskjálfti hérna! LoL Þessi vetur td var mjög Akureyrskur, langur, kaldur og mikið af snjó (sem ég elskaði btw), og núna þegar hann er að verða liðinn á enda er fólk í hrönnum að mynda hópa á feisbúkk sem heita td "Við sem lifðum af ístiðina 2010!" hahaha LoL

Nú annars er það í fréttum að Jóhanna sem er svooo gáfuð og snögg að hugsa yfirleitt var að fatta eftir 6 ára hjónaband að maðurinn sem ég er gift er bara svíi að nafninu til, í raun og veru er maðurinn finnskur, sem gerir að verkum að litlu stelpurnar mínar eru finnsk-íslenskar en ekki sænsk-íslenskar. Þetta er nú soldið fyndið af því að ég er eiginlega búin að vita þetta allan tímann, en var samt ekki að kveikja á þessu fyrr en núna um daginn LoL Mín góð bara! Hvað ætli það verði næst, ég kannski fatta allt í einu að hann er transa eða eitthvað LoLLoL (þarf maður að vera það þó hann noti naglalakk, eða er naglalakki kannski bara byrjunin á einhverju öðru? LoL).

Jæja nóg af bulli í bili, hlakka til að sjá Kötlu gjósa bara, verður fyndið að lesa greinarnar hérna þá!

Lífið kemur fyrir, og það kemur fyrir mig LoL

Knús á ykkur öll


Næsta síða »

Höfundur

Jóhanna Pálmadóttir
Jóhanna Pálmadóttir
Réttur ríkisborgari í vitlausu landi :)

Smelltu á þetta...

Topplistinn

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • stelpurnar í baði
  • Nína og Rambó
  • N´na jólasveinn
  • DSC01204
  • DSC01055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 25795

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband