Föstudagur...

Jæja, mér er farið að líða mikið betur af pestinni, en þá er komið nýtt vandamál! Það er búið að hóta mér með heimsókn í maí, svo nú verð ég að gerast flóttamaður...er að hugsa um kannski að sækja um skjól í Írak eða Íran eða eitthvað...allt er betra en að vera hér ef rætist úr þessu...

Kominn föstudagur, maðurinn og eldra barnið farin út í skóg að byggja kofa eða hvað það er sem þau eru alltaf að gera þarna, éta lirfur eða eitthvað...litla að horfa á Tímon og Pumba og leyfir mér alveg að vera í friði í bili, svo ég fæ barasta að sitja hérna og lesa blogg og hlusta á tónlist...er td núna að hlusta á Franska lagið, man einhver eftir því? Happy Eðal tónlist!

Jæja, ætli ég verði ekki að fara að taka til í eldhúsinu, er að fara að elda kjúkling í ofni og ÞOLI bara ekki að elda þegar það er ósnyrtilegt í eldhúsinu hjá mér! Má alveg vera allt í rusli í allri íbúðinni, en eldhúsbekkurinn skal vera tómur þegar ég elda!!! GetLost

Untill next time...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

Ég, ég, ég man eftir franska laginu, annars er það nú svo að það mesta af tónlist sem ég man eftir kallas ellismellir í dag

Erna Evudóttir, 9.3.2007 kl. 16:14

2 Smámynd: Kolla

Gott að þér sé farið að líða betur

Kolla, 9.3.2007 kl. 16:24

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég man eftir franska laginu og ég veit ekki betur en það sé orðið "ellismellur" Jóka mín þú ferð að ná okkur

Jónína Dúadóttir, 9.3.2007 kl. 16:32

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Af hverju man ég ekki eftir franska laginu,var mikið um stunur í því?Thi hi hvernig stynur maður á frönsku.

Birna Dúadóttir, 9.3.2007 kl. 19:10

5 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Mmmm...je t'aime, ah oui je t'aime...oh mon amour...

Jóhanna Pálmadóttir, 9.3.2007 kl. 21:04

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Hmm nota þetta næst þegar ég fæ heimsókn,veit að það slær í gegn

Birna Dúadóttir, 9.3.2007 kl. 21:30

7 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Hehe...já, þetta virkar aaalltaf fyrir mig!

Jóhanna Pálmadóttir, 9.3.2007 kl. 23:10

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ertu búin að kaupa þér flugmiða úr landi,í maí

Birna Dúadóttir, 9.3.2007 kl. 23:22

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Er það spurning "hvort" hún er búin að því ? Er það ekki frekar spurningin : "Hvert" ferðu vina ?

Jónína Dúadóttir, 10.3.2007 kl. 08:17

10 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Gvöööð...þarf að fara eins langt og ég bara kemst...Ástalíu kannski?

Jóhanna Pálmadóttir, 10.3.2007 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband