Jeeeminn!

Þvílíkur dagur! Nathalie er með 39 stiga hita, stelpan á hæðinni fyrir ofan með 40,6 og við  mömmurnar hérna ekkert allt of hressar heldur Pinch Og eins og það væri ekki nóg þá komin aumingja greyið Becca mín heim með illa klemmdan litla putta, alveg að drepast! Frown Litla skinnið! Vona bara að hann sé ekki brotinn! Og svo er greyið Ívar hérna, mitt í slysa/veikindabælinu...ekkert allt of gaman fyrir hann, angann minn...

Ég gerði svona Gunnar áðan Whistling, við kaupum mjólk í 2 lítra dunkum með skrúfutappa, og það þarf að hrista mjólkina af því að hún er bara svona létt fitusprengd og annars leggst fitan eins og himna á yfirborðið. Allt í lagi með það, Nathalie, voða aum og veik, vildi fá mjólk og súpermamman náttúrulega stekkur á stað til að verða við ósk barnsins, grípur í mjólkurdunkinn, hristir hann og fattar svo þegar mjólkurtaumarnir renna niður eftir höfðinu á henni að: Úúps, hún var ekki lokuð!!!
Ég veit ekki hverjum fannst þetta fyndnast, mér eða krökkunum LoL Nathalie var eiginlega hrifnust af að ég sullaði bara á mig og ekki á hana! Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Evudóttir

En var það ekki Kleópatra sem baðaði sig uppúr mjólk, var alveg að virka fyrir hana ekki leiðum að líkjast!

Erna Evudóttir, 21.2.2007 kl. 18:53

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Kleópatra mín,þú ert æði.Vonandi batnar snúllunum báðum fljótt

Birna Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 19:53

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég skil þetta með Jóku hjúkrunarfræðing, látið ykkur nú batna fljótt og vel

Jónína Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 22:06

4 Smámynd: Erna Evudóttir

Já sko Ívar má ekki verða lasinn, fótbolti á föstudaginn, mæting 0715

Erna Evudóttir, 21.2.2007 kl. 23:38

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hann er algjör nagli, færi sjálfsagt samt

Jónína Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 07:53

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóka mín ég vona að ástandið á ykkur sé eitthvað betra í dag

Jónína Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 10:25

7 Smámynd: Birna Dúadóttir

Hvernig líður á heimilinu núna?

Birna Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 12:30

8 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Nathalie ennþá með hita, sofandi núna greyið og Becca anginn ennþá alveg að drepast í puttanum, leyfði henni að taka sér frí úr skólanum ídag

Jóhanna Pálmadóttir, 22.2.2007 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband