Þau fóru aftur út í skóg í gær...og eru ekki enn komin heim!!! Þvílíkar hetjur!!! I am sooo impressed!!!
Ég er ánægð, fékk steiktann fisk í kvöldmat hjá hinni mömmunni, gerist ekki oft að ég fæ þessháttar "delikatessen", eldri dóttir min á við svona "fish-issue" að stríða, hún borðar bara plokkfisk og engan annan fisk takk!! Sem betur fer er Nathalie Erna algjör fiskikelling þannig að ég er amk ekki ein!
Finnst svaka gaman hvað við erum margar "systurnar"hérna að blogga, sammála þeirri sem sagði að eldhúsborðið hennar (m)ömmu væri komið á netið...nú er ég bara að bíða og vona að elsku Linda litlasystir læri þetta líka...(Linda, ég sakna þín!!!)
Í dag er plokkfiskur í matinn! Namminamm!!!
Athugasemdir
Til hamingju með daginn KONA Þau fóru út í skóg í gær og eru ekki komin heim ! Er ekki eitthvað athugavert við það elskan ???
Jónína Dúadóttir, 18.2.2007 kl. 13:23
Sammála síðasta ræðumanni, en þú færð þá kannski meira af plokkfiskinum ef þau eru ekki komin heim ennþá
Erna Evudóttir, 18.2.2007 kl. 17:19
Uss engar áhyggjur þó þau séu ekki komin.Ég reyndi þetta í mörg ár,þau komu alltaf aftur þegar öll berin í skóginum voru upp urin.
Birna Dúadóttir, 19.2.2007 kl. 12:37
Það er nefnilega vandamálið...they always come back!
Jóhanna Pálmadóttir, 19.2.2007 kl. 13:13
Æi Jóka mín það hafa allir sín vandamál Getur þú ekki reynt að drekkja þeim í plokkfiski ? Þá er ég að sjálfsögðu að meina vandamálin
Jónína Dúadóttir, 19.2.2007 kl. 13:19
Ertu úti að syngja ?
Jónína Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.