17.6.2008 | 21:01
Bangsagrey!
Mikið fannst mér þetta synd!
Ég vonaði virkilega inn í það lengsta að honum Carsten myndi takast að deyfa þetta grey svo hún gæti nú fengið að fara bara heim...mér finnst ísbirnir vera ótrúlega falleg dýr og það væri synd og skömm ef þeir hyrfu nú alveg af þessari jörð okkar og hverjar afleiðingar þess gætu orðið langar mig ekkert að spá um...en, ég var ekki á svæðinu og get náttúrulega ekkert dæmt um hvort ákvörðunin að lóga greyinu var rétt, verð bara að treysta því að fólkið þarna hafi vitað hvað það var að gera!
En yfir í annað, gleðilega þjóðhátíð!!!
Niðri í bæ hjá mér, við ráðhúsið, höfðu þeir halað upp bæði íslenskum og sænskum fánum í tilefni dagsins, það kom mér skemmtilega á óvart!
Eigið góðan dag, vonum að það komi ekki fleiri birnir eða birnur heim á klakann í bili!
|
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tenglar
Stelpurnar mínar
Gullfallegar myndir
- Only in Iceland Dásamlegar myndir sem Jenni hefur tekið
NA
Bati
- KRIS Félagsskapur fyrrverandi glæpamanna sem vilja lifa heiðarlegur lífi.
Spil
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Maí 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 26990
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


ollana
dagny65
due
brandarar
cakedecoideas
ernadua
topplistinn
rannug
vulkan
tryggur
jodua
kaffikelling
kollaogjosep
vefritid










Athugasemdir
L.Í Ú . lætur ekki að sér hæða, hann var nú eftir alltsaman kvótalaus, um leið og hann var líklegur til að ná í þorsk
Hjörtur Guðbjartsson (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 21:12
Birna Dúadóttir, 17.6.2008 kl. 21:27
Á Sikiley eru þeir kallaðir Cosa Nostra, á Íslandi L.Í.Ú...

Jóhanna Pálmadóttir, 17.6.2008 kl. 21:32
Mikil vonbrigði með þessi endalok. Var svo innilega að vonast til að við gætum gert rétt í þetta skipti.
Hvar ertu í Svíþjóð? 'Eg á töluvert mikið af frændfólki í Jönköping og svo í Stokholm. Gaman að heyra að Svíarnir flögguðu fyrir okkur Íslendingum í dag.
Erna Hákonardóttir Pomrenke, 17.6.2008 kl. 22:20
Svona gerir litli sæti bangsinn
http://magoo.blog.is/blog/magoo/entry/570398/
Mr;Magoo (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 22:37
Erna H: Skemmtileg tillviljun, ég er einmitt í Jönköping
Nú er ég forvitin, hvar í bænum býr frændfólk þitt?
Jóhanna Pálmadóttir, 17.6.2008 kl. 23:50
Jóhanna, greyið dýrið hefði hvort eð er ekki lifað svæfinguna af, tilhvers að deyða það með löngum dauð daga þar sem að sérfræðingurinn sá að björgun myndi ekkert upp á sig og tilraunin misheppnaðist þessi dýr eru vernduð á sjó en ekki á landi, þau eru stórhættuleg, enda var þessi björn mjög illa til fara, særður á löppum og mjög horaður, hefði eflaust látist við svæfingu.
Oddný, 18.6.2008 kl. 00:16
Gaman að þeir skyldu flagga íslenska fánanum líka
Jónína Dúadóttir, 18.6.2008 kl. 06:53
Það var nú bara ég sem flaggaði íslenska fánanum hérna í Linköping
Erna Evudóttir, 18.6.2008 kl. 08:35
Erna mín, það er nú ekkert "bara"
Jónína Dúadóttir, 18.6.2008 kl. 08:44
Er Jóka P alveg týnd
Birna Dúadóttir, 29.6.2008 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.