Jæja, þá er þetta búið...nú verð ég að fara að hætta að tala illa um Andreas í símann á íslensku svo hann heyri til...hihihi...hann fór á bókasafnið í dag og fékk lánað íslenskunámskeið á kassettu! Nú ætlar minn sko aldeilis að læra málið! Mér finnst það nú bara flott hjá honum, gaman að hann skuli hafa svona áhuga á minni tungu og mínu landi...yndislegt bara!!!
LITLI, LITLI frændi minn hann Ingi Stefán er 21 árs gamall ídag...TIL HAMINGJU!!! Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem þessi litli gutti hringdi í stóru frænku sína á hverjum einasta degi bara svona til að spjalla aðeins! Jeminn, hvað maður er að verða fullorðinn eitthvað!!!
Fór út að labba í morgun líka, finnst ég vera geggjað best! Fór svo í göngutúr með elskunni minni niðrí bæ líka, fórum og keyptum okkur steikarpönnu! Ánægð með það, mig vantaði svo eina venjulega sem viðbót við járnpönnuna mína! Mikilvægt að eiga almennileg eldhúsáhöld!!!
Á morgun ætla ég að fara út í kjötbúðina hérna og kaupa lambalifur, síðan ætla ég að elda handa fjölskyldunni minni ekta lifrabollur með kartöflum og brúnni sósu alveg eins og amma gerði hérna í denn...mmmmmmm gott!!!
Becca fór loksins í skólann í dag, ennþá með hálsbólgu greyið en amk hitalaus í nokkra daga núna...nú getur hún LOKSINS fengið að prófa hjólið sem við keyptum handa henni um helgina!
Athugasemdir
Elsku litla sys, ef að skrifa fyrirsagnir er það erfiðasta sem þú gerir í lífinu, þá öfunda þig allir Flott hjá Andreas, passaðu þig á honum, hann er fyrir löngu farinn að skilja miklu meira í íslensku en þú gerir þér grein fyrir Borða með ykkur í huganum
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 13:21
Borða ekki með ykkur, hvorki í huganum né að nokkru öðru leyti en verði ykkur samt að góðu! Elska allan mat sem mamma gerir nema lifrarbollur, sósan er fín með kartöflum en bollurna læt ég alveg í friði
Erna Evudóttir, 21.3.2007 kl. 14:07
Lifrabollur mmmmm
Jóhanna Pálmadóttir, 21.3.2007 kl. 16:39
Lifrarbollurnar,það allra besta.Svo ég tali nú ekki um hrefnukjötið,mmm.Held að það sé það eina sem ég get eldað eins og mamma.
Birna Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 18:50
Hrefnukjöt er æði, hvern langar að veiða fyrir mig hrefnu og elda handa mér þegar ég kem í sumar, einhver sjálfboðaliði?
Erna Evudóttir, 21.3.2007 kl. 18:57
Aaahh...viltu taka með þér hrefnukjöt handa mér heim...snälla!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 21.3.2007 kl. 19:00
Þú heldur semsagt að það verði eitthvað eftir
Erna Evudóttir, 21.3.2007 kl. 19:13
Vitiði elskurnar mínar að það eru verslanir hérna með matvörur og þar má kaupa hrefnukjöt Maður þarf ekkert að eiga útgerð
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 19:49
Senda mér plííís! Gæti drepið fyrir hrefnukjöt (ef einhver annar hefði ekki gert það fyrir mig! )
Jóhanna Pálmadóttir, 22.3.2007 kl. 13:14
SENDA þér hrefnukjöt ???? Komdu bara og sæktu það sjálf
Jónína Dúadóttir, 22.3.2007 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.