Jæja, þá eru þau farin og skildu mig eftir hérna alveg aaaaleina , nei, skildu Einar greyið eftir líka sem er ekki kúl af því að þá get ég náttúrulega ekki farið á eftir og skilið hann eftir líka, eða hvað? hahaha
Ég er búin að finna sérsvæði Ernu, hún ætti að gerast símasölukona!!! Mér datt svona allt í einu í hug á laugardaginn að það væri nú kannski kúl að fá einn af kettlingunum sem voru eftir, þennan litla svarta. Einmitt það já, áður en ég náði númerinu á vörubílnum sem keyrði yfir mig var ég allt í einu búin að samþykkja að taka frekar Addó, þennan stóra, gráa kött sem er svo góður og er alls ekki með neitt veiðieðli sem er nauðsynlegt þar sem við erum bæði með fugl og nagdýr. Erna mín, ef þú ert að lesa þetta: ÞÚ GLEYMDIR AÐ SEGJA KETTINUM AÐ HANN SÉ EKKI MEÐ VEIÐIEÐLI!!!
Kom að honum áðan sitjandi á rottubúrinu og svipurinn á honum sagði EKKI: Komdu og gefðu mér knús! Erna, þú ert miskunnarlaus kona með svona nagdýraissue! Viðurkenndu það bara, Addó is your hitman!
En, þessi yndislega stóra hetja er hinsvegar drulluhræddur við kanínuna mína!!! Hann þorir ekki að labba framhjá henni, hann hoppar yfir hana í staðinn. Og ég sver, ég hef ALDREI séð kött hoppa svona hátt! Hann hræðist ef til vill hefnd kanínunnar fyrir að hann skeit í búrið hennar í gær, hún er nefnilega líka með kattasand sem hún gerir þarfir sínar í...
Það var samt voða sorglegt í gær að horfa á eftir fólkinu, Becca mín hágrét...ég var svona voða hetja, lét eins og þau væru bara að fara heim til Linköping aftur, það er svona rétt að ná mér núna að þau eru að flytja úr landi... Það verður skrítið að geta ekki skroppið til Ernu svona yfir helgi annað slagið, eða fá hann Ívar minn hingað í fríum, amk ekki jafn oft...eeeen ég hef þó allavega Addó!
Nú ætla ég að fara að leggja sofandi barnið frá mér og drekkja sorgum mínum í kaffibolla.
Erna, Jenni og krakkar: Elska ykkur í tætlur og sakna ykkar mikið!!! Óska ykkur góðrar ferðar og góðs gengis "í sveitinni"!!! (Vá, núna náði þetta mér!!!)
Athugasemdir
... hún kom ekki með köttinn til mín.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.6.2008 kl. 13:29
Jónína Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 13:46
Hahahah...nei, viltu fá hann Gunnar minn?
Jóhanna Pálmadóttir, 30.6.2008 kl. 18:09
Æts Becca dúllanVorkenni þér minna,þú ert soddan jaxl og hefur líka kattarkv...kallaðu hann bara ErnuOg ef hann er óþekkur,sendu hann bara til Gunnars
Birna Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 19:06
Góð hugmynd Birna. Séð það fyrir mér: Erna, ekki éta rottuna!!! Erna, ekki skíta í kanínubúrið!!! Erna, láttu fuglinn í friði!!! Hahaha
Talandi um annað þá fann Erna hund handa mér á netinu, hann heitir Affe! Hvað væri það geggjað: Affe sittu, Affe play dead!
Jóhanna Pálmadóttir, 30.6.2008 kl. 21:04
Erna er fínt nafn á köttinn
Jónína Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 21:34
Bara einn galli við að eiga hund sem heitir Affe.Þú ferð með hann út að ganga,hann gerir stykkin sín og þú tekur upp plastpoka og...Affe getur bara sjálfur verkað sinn eiginn...
Birna Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 22:52
Birna sagði það....
Jónína Dúadóttir, 1.7.2008 kl. 06:30
Hahahahaha ...takk Birna, var ekki búin að hugsa þetta svona langt!
Jóhanna Pálmadóttir, 2.7.2008 kl. 13:30
Alltaf að hugsa Affe til enda
Birna Dúadóttir, 2.7.2008 kl. 18:56
Hahahaha
Jóhanna Pálmadóttir, 2.7.2008 kl. 20:58
Mér dettur hann yfirleitt ekki í hug... nema ef mér verður hugsað til Beccu og dettur í hug hvað hún er svakalega vel heppnuð lítil stúlka þrátt fyrir sko hm...
Jónína Dúadóttir, 2.7.2008 kl. 21:02
Ninna, þú ert svo góð!
Jóhanna Pálmadóttir, 3.7.2008 kl. 11:18
Æi nei elskan mín ég er ekkert góð, bara hreinskilin
Jónína Dúadóttir, 3.7.2008 kl. 12:12
Halloooooooooooo einelti hvað, sakna ykkar líka í tætlur
Erna Evudóttir, 4.7.2008 kl. 07:47
Ekki einelti Erna mín, bara væntumþykja í dulbúningi
Jónína Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 08:27
Birna Dúadóttir, 8.7.2008 kl. 09:08
Tel frekar manninn minn til villidýra þannig að þetta gæti sloppið He's my tiger, you know...grrrrrowl!
Jóhanna Pálmadóttir, 8.7.2008 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.