Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

112, I have an emergency!

Jæja, nenni ekki að hanga útá hlaði og bíða eftir ungu slökkviliðsmönnunum lengur!

Fór í IKEA í gær og keypti loksins góða gardínu fyrir svefnherbergisgluggann okkar, við erum með morgunsólina þeim meginn og maður er bara alveg að kafna á morgnana!

Hef mikið verið að pæla í því undanfarið hvað það hlýtur að vera mikil skömm tengd því að vera svíi! Það vantar svo rosalega þennan holla patríótisma sem mér finnst að fólk ætti að hafa..hérna er svo mikið annaðhvort eða! Ég er til dæmis alveg svakalega stolt yfir mínum uppruna, að vera íslensk, mér finnst fáninn okkar mjög fallegur, elska Ísland og þess fallegu náttúru og íslenskan anda að mörgu leyti. En að sjálfsögðu eru margir gallar á íslensku þjóðinni líka, enginn er fullkominn...og mér finnst ekkert að aðrar þjóðir séu minna virði eða neitt þannig...mér finnst bara að allir eigi rétt á að vera stoltir af sínum rótum án þess þó að líta niður á uppruna annarra...hafðu þinn kúltúr í heiðri en lærðu endilega af aðra siðum líka osfrv.
Ég er að upplifa að þetta vanti svo hérna...það er alltaf verið að tipla eitthvað á tám til að troða nú örruglega ekki á innflytjendum sem eru ekkert að upplifa endilega samt að það sé verið að troða á þeim. Til dæmis er í mörgum skólum ekki þjóðsöngurinn sunginn lengur á skólaslitum, af því að einhver gæti nú móðgast...ég er nú innflytjandi og mér myndi nú bara ekki detta það í hug að láta það fara í taugarnar á mér þó að landið sem ég flutti til haldi bara sínum ævafornu siðum! Í fyrra á skólaslitunum hjá Beccu voru ekki heldur neinir sænskir fánar neins staðar...jú, fyrirgefið...2 fánar voru á svæðinu...svona litlir á plastpinna...ég var með einn og Nathalie með hinn...
Að sjálfsögðu er slæmt þegar þjóðernisástin gengur út í öfgar eins og hjá nýnazistum og þess háttar lýð, en halló...má finna milliveginn?

Veit ekki hvort þetta er nokkuð betra heima á Íslandi, en svona er þetta hérna og mér finnst það ekki gott mál...hætta þessarri yfirdrifnu tillitssemi sem enginn er að biðja um og vera smá stolt!!!


God...

Take my will and my life.
Guide me in my recovery.
Show me how to live.


Litla stúlkan með eldspýturnar!

Ég sá fram á að ég þyrfti að skrifa smá blogg til að koma þessu á hreint með brunan hérna ídag!

Sko, af því að öllum múhameðstrúarmönnum hérna í hverfinu, nema þessum indversku sem "eiga" akkúrat moskuna sem um er að ræða, virðist vera svo ákaflega illa við sagðan trúarlega samkomustað, ákvað ég að sýna það og sanna í eitt skipti fyrir alla að ég tek enga afstöðu í trúarlegum málum, né er ég með fordóma út í fólk sem iðkar önnur trúbrögð en ég! Þetta fannst mér ég vera að gera á góðan hátt með því þá að brenna þennan stað til kaldra kola. Því miður, þegar ég fór að finna ákafa brunalykt í íbúðinni minni, rann það upp fyrir mér að ég var búin að "skíta þar sem ég ét". Fannst mér það nú ekki vera alveg hið besta mál og ákvað ég því að hringja í slökkviliðið. Fyrir því voru tvær ástæður, önnur þeirra var sú að ég vildi bjarga eigin skinni, en hin var að mmmm...I just love men in uniforms!!! Devil Seinni ástæðan var sú afgerandi!!!
Þetta leiddi til þess að hingað komu 2 stórir brunabílar, 1 löggubíll, 1 sjúkrabíll, brunatæknigaur og að sjálfsögðu blaðamaður. Að sjálfsögðu björguðu þeir deginum fyrir fólkinu í stigaganginum, en ekki fyrir mér, á vakt voru nefnilega bara 40+ klúbbsmeðlimar Crying Náttúrulega mín heppni að bara allir þessir ungu í fríi akkúrat í dag!!!

The Linköping branch of the family gerði innrás á mig ídag, yndislegt að vanda, en alltaf jafn tómlegt þegar þessi gífurlegi fjöldi fólks snýr aftur til síns heima LoL Endilega komiði oftar, yndislegt að sjá ykkur, og þegar maður býr í svona hverfi þar sem ALLIR eiga stórar fjölskyldur var alveg rosalega gaman að geta sagt að maður sé að fá ættingja í heimsókn LoL

Á morgun ætla ég svo að njóta þess að fá trúnaðarkonuna mína í heimsókn, hef ekki hitt hana síðan fyrir jól og sakna hennar mikið...hlakka til langs samtals um ma sporavinnu og annað þessháttar!!! YNDISLEGT!!! Ætla svo að drösla mér á samkomu á föstudaginn eftir alltof langa pásu!

Good night, sleep tight and don't let the bed bugs bite og munið að...

Dagurinn í gær er liðinn.
Morgundagurinn er óvænt ánægja.
Dagurinn í dag er gjöf.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband