Ég er 5 ára ídag, nokkuð stolt af árangrinum bara!!! Keypti mér líter af Häagen-Dazs i tilefni dagsins! Fór líka á kaffihús með manninum mínum, Ernu litlu og Ívar og keypti mér Chocolate Éclaire sem var svo subbulega, dónalega góð að ég keypti eina to go og sendi Ernu
Erna er að fara að flytja út í sveit, en það er allt í lagi, af því að það eru göng yfir í næstu sveit, þannig að ef gerir slæmt veður þá getur hún alltaf keyrt í gegnum göngin syngjandi: "Ég er ekki veðurteppt, ég er ekki veðurteppt!!!" Svo eiga börnin hennar eftir að verða krypplingar, vegna þess að það er ekkert sjúkrahús þarna og þá verða beinbrotin náttúrulega bara að gróa svona aðstoðarlaust, skakkt og illa, börnin koma náttúrulega ekki til með að sýna þann góða smekk að hætta bara að slasa sig. Annars gæti hún líka bara pakkað þeim inn í plast eða eitthvað, gæti virkað!!! HAHAHA En, það versta er að nú verður Erna að fá sér sláttuvél!!!
Yndislegt bara!!! Ég er ekkert með fordóma út í svona smápláss út á landi!!!
Erna, I love u anyway!!! Move to Habo instead!!!
Athugasemdir
Habo here I come
Erna Evudóttir, 25.3.2008 kl. 22:05
Nei nei þú ert ekkert með fordóma út í svona staði elskan er það nokkuð
Til hamingju með stórkostlegan árangur elsku Jóka mín
Jónína Dúadóttir, 25.3.2008 kl. 22:19
Takk fyrir eineltið,þú ert frábær.Okkur endist Erna fram á sumar
Birna Dúadóttir, 25.3.2008 kl. 22:24
Þekkjumst við eitthvað?
Erna Evudóttir, 25.3.2008 kl. 23:33
Ójá þú ert systir okkar !!! Bara svo að fari nú ekki fram hjá neinum
Jónína Dúadóttir, 26.3.2008 kl. 04:51
Ok kaupi það ef bæði mamma og Mogginn segja það
Erna Evudóttir, 26.3.2008 kl. 06:56
Það vill svo til að þau hafa bæði sagt það
Jónína Dúadóttir, 26.3.2008 kl. 07:09
Hjartanlega til hamingju
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.3.2008 kl. 17:02
Við erum búin að kaupa húsið og fá lyklana og allt
Jónína Dúadóttir, 27.3.2008 kl. 12:22
Halló elsku bollan mín, hvernig gengur ?
Jónína Dúadóttir, 1.4.2008 kl. 07:08
Vá, til hamingju með ferminguna Hjödda mín!
Og TAKK allir
Gengur fínt með bumbuna, allt eins og það á að vera nema hvað þetta mætti vera búið núna!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 1.4.2008 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.