Brjálað að gera 2!!!

Var ekki fyrr komin úr viðtalinu sem gekk of vel fyrr en það var hringt í mig frá öðrum stað og mér boðið að koma í viðtal þar á morgun!!! Skuggalegt!!! Líka svona símasöludæmi.

Gleymdi alveg að skrifa um það í morgun, en í dag eigum við hjónin 3 ára brúðkaupsafmæli, sem myndi vera leðurafmæli samkvæmt áreiðanlegum heimildum Tounge Úúú...kinkí!!! Og þar að auki þá á elskan mín afmæli ídag, 26 ára ungur! Ég gerði honum smá grikk og bauð vinum okkar í afmæli án þess að hann vissi af því...vinkona mín bakaði fyrir mig og svo réðust allir inn hérna þegar við vorum nýkomin af aikido æfingunni hennar Beccu!

 

 

Og það var annað, Becca tók ídag gráðuna 12 kyu í Aikido, set inn myndir af "graderingen" (veit ekkert hvað það heitir á íslensku) fljótlega!

Læt fljóta með eina mynd af brúðparinu í tilefni dagsins! DSC01096

Lifið heil, sjálf ætla ég að bjóða manninum mínum að éta afganginn af rjómatertunni með mig í hlutverki disksins! InLove 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með brúðkaupsafmælið og líka með manninn Og Becca náttulega toppar þetta allt saman Þetta þarna síðasta var aðeins meira en ég þurfti að fá að vita

Jónína Dúadóttir, 22.5.2007 kl. 21:42

2 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Muhahahaha...

Jóhanna Pálmadóttir, 23.5.2007 kl. 07:26

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Já einmitt, við gömlu konurnar þurfum að hugsa um hjartað

Erna Evudóttir, 23.5.2007 kl. 08:23

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já og svo er þetta með blóðþrýstinginn

Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 12:06

5 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Tempora mutantur, nos et mutamur in illis! Svona er það að verða gamall!!!

Jóhanna Pálmadóttir, 23.5.2007 kl. 14:03

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já bíddu bara engillinn minn, það kemur nefnilega fyrir besta fólk að verða gamalt, ef það þá lifir svo lengi

Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 15:26

7 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Jú, rétt hjá þér, en mundu að quem dii diligunt, adolescens moritur et fugit irreparable tempus! 

Jóhanna Pálmadóttir, 23.5.2007 kl. 17:16

8 Smámynd: Erna Evudóttir

Ertu semsagt að meina að kemur Díi með dílinn, þá morrar addó sense með fúgu í ónýtu temói?  Hefði aldrei trúað þessu uppá þig

Erna Evudóttir, 23.5.2007 kl. 20:13

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég vissi alltaf að hún væri svona, beið bara eftir því að hún talaði af sér. Sem hún er svoooo búin að gera núna

Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 20:17

10 Smámynd: Erna Evudóttir

Ég veit, sjokkið sem maður verður fyrir, alveg spurning um áfallahjálp eða tala við prest eða bara öskukallinn

Erna Evudóttir, 23.5.2007 kl. 20:19

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Öskukallinn er líklegri til að redda þessu en presturinn

Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 22:10

12 Smámynd: Birna Dúadóttir

Til hamingju leðurperrarnir mínir

Birna Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 22:38

13 Smámynd: Erna Evudóttir

Hvar er Tóbasteini? Need your help

Erna Evudóttir, 24.5.2007 kl. 05:31

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég held hann sé dau...ég meina dáinn eða er hann það ekki ? En Birna er greinilega ekki dáin.  Erna ekki jarða hana strax, ég endurtek : Erna ekki jarða Birnu strax !

Jónína Dúadóttir, 24.5.2007 kl. 08:25

15 Smámynd: Erna Evudóttir

Ok ég sit á höndunum á mér svo ég geri nú enga vitleysu

Erna Evudóttir, 24.5.2007 kl. 11:08

16 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

 Takk Birna!

Jóhanna Pálmadóttir, 24.5.2007 kl. 11:41

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Nei, nei, engin þörf á því, það leynir sér ekkert að þú ert ekki nógu ánægð með rútuna Er ég ekki alveg eins flink í þessu tungumáli og Erna systir?

Jónína Dúadóttir, 25.5.2007 kl. 12:23

18 Smámynd: Erna Evudóttir

Alveg rétt, rútan er ekki að gera sig, bara skipta yfir í leigubíl eða flugvél!

Erna Evudóttir, 25.5.2007 kl. 18:25

19 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hvar er Jóka ?

Jónína Dúadóttir, 26.5.2007 kl. 08:10

20 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Er hérna  Það er svo gaman að geta hent út smá latínu og fengið tilbaka...takk fyrir að vera hérna Hjödda

Jóhanna Pálmadóttir, 26.5.2007 kl. 13:27

21 Smámynd: Erna Evudóttir

Ertu með eitthvað skítkast út í tungumálakunnáttu okkar systranna?

Erna Evudóttir, 26.5.2007 kl. 14:02

22 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bara leiðindi ?

Jónína Dúadóttir, 26.5.2007 kl. 15:45

23 Smámynd: Erna Evudóttir

Skil ekkert í þessu Eva Jóhanna Pálmadóttir Svedjehed hvernig þú lætur við virðulegar móðursystur þínar

Erna Evudóttir, 26.5.2007 kl. 17:01

24 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Með afskaplega alvarlegri áheyrslu á "virðulegar"

Jónína Dúadóttir, 27.5.2007 kl. 10:17

25 Smámynd: Erna Evudóttir

Virðulegar með STÓRU vaffi

Erna Evudóttir, 27.5.2007 kl. 10:36

26 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Sorry stelpur mínar, errare humanum est!  

Jóhanna Pálmadóttir, 27.5.2007 kl. 18:20

27 Smámynd: Erna Evudóttir

Ertu líka að meina að við séum frá Eistlandi, það var sko Birna sem var ættleidd ekki við

Erna Evudóttir, 27.5.2007 kl. 18:32

28 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Af hverju lætur barnið svona við okkur ?

Jónína Dúadóttir, 27.5.2007 kl. 20:45

29 Smámynd: Erna Evudóttir

Hún er á einhverju mótþróaskeiði og núna vill hún ekki einusinni tala við okkur, Jóka tjáðu þig (helst á íslensku)

Erna Evudóttir, 28.5.2007 kl. 06:43

30 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóka mín viltu kaffi ?

Jónína Dúadóttir, 28.5.2007 kl. 08:02

31 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Mmm...endilega! Fæ ég súkkulaðisnúð með því?

Jóhanna Pálmadóttir, 28.5.2007 kl. 11:14

32 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Ipsa scientia potestas est!

Jóhanna Pálmadóttir, 28.5.2007 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband