Er enn á svæðinu...búin að hafa nóg að gera við að skemmta Einari litla og kærustunni Nei, nei...þau sáu nú alveg um það sjálf!
Var með vöðvabúnt í mat á þriðjudaginn...gullfallegur gæi sem fær mann til að óska þess að maður væri fráskildur... Sá hinn sami samþykkti að gerast einkaþjálfarinn minn þannig að nú er mín loksins á leið í ræktina
Einar fór ídag, tók því miður Johanna með sér heim, she´s a keeper!!! Hún má flytja hingað any day...yndisleg stelpa!!! Tómlegt þegar þau fóru en það stendur til bóta af því að eftir bara klukkutíma kemur Ívar... frábært!!!
Nú ætla ég að halda myndarlega páska, keypti meira að segja lambalæri!!! Ef ég sé ykkur ekki fyrir páska eigið góða helgi með mikið af súkkulaði...eggin mín koma víst eftir páska!!!
Love to everybody!
Athugasemdir
Skemmtiði ykkur vel og ekki segja neinum frá þessu aumingjalega páskaeggi sem ég sendi Ívar með til þín
Erna Evudóttir, 6.4.2007 kl. 17:31
Og alls ekki segja neinum að ég sendi þér alls ekkert páskaegg
Jónína Dúadóttir, 6.4.2007 kl. 18:34
Gvööööð Erna, þetta páskaegg er hneyksli!!! Þettar er allt í lagi Ninna mín, tengdasonur elstu bróðurdóttur yngri dóttur Björns Ásgeirssonar er víst búinn að kaupa páskaegg handa mér og stelpunum...eða voru það kannski bara 3 handa mér?!
Jóhanna Pálmadóttir, 7.4.2007 kl. 10:02
Vá ég er að vísu nývöknuð,en ég næ þessu bara alls ekki með ættfræðina
Birna Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 10:41
Nei, enda var þetta vitleysa hjá mér...kona tengdasonarins er alls ekkert elsta bróðurdóttir yngri dóttur hans Björns, heldur er hún elsta dóttir tengdadóttur Björns heitins...þá skilurðu þetta strax Birna mín, er það ekki? Ættfræði er kúl!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 7.4.2007 kl. 10:46
Aha næ þessu núna,þremur kaffibollum síðar,ég held að þetta hafi eitthvað með gæðin á kaffinu að gera
Birna Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 11:01
Ég næ þessu alls ekki ! Hver er að senda þér páskaeggin ?
Jónína Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 12:18
Oh...Ninna!!! Sambýlismaður elstu dóttur tengdadóttur Björns heitins Ásgeirssonar og konu hans og alnöfnu þinni Jónínu Dúadóttur!!! Ertu engu nær? Farðu þá inn á íslendingabók
Jóhanna Pálmadóttir, 7.4.2007 kl. 15:05
Ó ! Á hún sem sagt sambýlismann ? Þú gast þá bara sagt : "hann stjúpi minn...."
Jónína Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 15:13
Of einfalt Ninna mín...of einfalt!
Jóhanna Pálmadóttir, 7.4.2007 kl. 17:10
Já sem sagt : sambýlismaður elstu dóttur tengdadóttur alnöfnu minnar ætlar að senda þér páskaegg
Jónína Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 18:19
Ég er alveg rugluð í þessu
Birna Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 18:41
Ja þú þarft ekkert að skilja þetta, búin að fá páskaegg
Erna Evudóttir, 7.4.2007 kl. 18:57
Skilur þetta þegar þú ert búin með páskaeggið frá
Jónína Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 19:11
Er ekki viss um að ég komi niður bita,allt í lagi samt,Sylvía fær þrjú.'Eg borða bara frá henni
Birna Dúadóttir, 7.4.2007 kl. 19:20
Er hún eitthvað að vanþakka eggið?
Jónína Dúadóttir, 8.4.2007 kl. 07:33
Gleðilega páska
Jónína Dúadóttir, 8.4.2007 kl. 07:54
Ertu búin með páskaeggin Jóka mín ?
Jónína Dúadóttir, 9.4.2007 kl. 11:53
Nei, eggin eru ekki komin enn
Jóhanna Pálmadóttir, 9.4.2007 kl. 13:03
Þú nýtur þeirra bara þess betur loksins þegar þau koma
Jónína Dúadóttir, 9.4.2007 kl. 14:13
Vona að þú hafir átt ánægjulega páska, þótt að eggin komu ekki á réttum tíma.
Takk fyrir kveðjuna
Kolla, 9.4.2007 kl. 19:49
Góðan dag eldra barn næstelsta(samkvæmt opinberum tölum) barns tengdadóttur föðurafa míns
Jónína Dúadóttir, 10.4.2007 kl. 10:34
Góðan og blessaðan daginn næstelsta dóttir tengdadóttur langafa míns
Jóhanna Pálmadóttir, 10.4.2007 kl. 12:01
Rosalega eru þið klára í ættfræðinni
Erna Evudóttir, 10.4.2007 kl. 14:38
Er ykkur sama þó að ég sé ekki með í ættfræðiklúbbnum,ég bara treysti mér ekki í þetta
Birna Dúadóttir, 10.4.2007 kl. 17:34
Birna, ekki félagsskítur, vera með
Jónína Dúadóttir, 10.4.2007 kl. 20:24
Kann ekki skil ekki má ekki vil ekki fatta ekki
Birna Dúadóttir, 10.4.2007 kl. 22:51
Sem sagt næst yngsta barn tengdadóttur langafa elstu systurdóttur minnar treystir sér ekki í ættfræðina með okkur Why ?
Jónína Dúadóttir, 11.4.2007 kl. 06:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.