Ég er hætt!!!

Nenni þessu ekki lengur, þessu óléttustandi!!! Fór að klæja út um allt og fékk þá að vita að ég er sennilega með meðgöngukláða, sem ég hef aldrei heyrt um áður, en sem er greinilega eitthvað fyrirbæri sem ekki er sniðugt fyrir barnið...þarf að fara í blóðprufu eftir helgi til að láta tékka á þessu og ef svo er verð ég sett á lyf...þetta er eitthvað sem er alls ekki hættulegt fyrir mig, hefur eitthvað með lifrina og óléttuhormón að gera og einu einkennin fyrir mig eru kláði, en þetta getur víst skemmt naflastrenginn einhvern veginn...minn ekkert að fatta...svo hverfur þetta bara strax eftir fæðinguna! Svo fékk ég töflur við kláðanum, en leist ekki alveg á blikuna þegar hún í apótekinu fór að tala um slævandi áhrif og að ég mætti alls ekki drekka áfengi með þeim (fyrir utan að ég er óvirkur alki þá er ég ólétt í 8 mánuði, áfengi hvað??? LoLLoL). Fór heim og hringdi inn á Vog, og mikið rétt, ég á helst ekki að taka þessar töflur. Þannig að ég á um tvennt að velja, annað hvort tek ég töflur sem ég á að forðast eða þá klóra ég mig í tætlur...hmmm...what to do?

Annars er það helst í fréttum að við erum enn að bíða eftir að fá stærri íbúð sem er ekki gott, eeen mitt í öllu þessu veseni þá er pabbi hennar Beccu búinn að snúa við blaðinu algerlega, er viðræðuhæfur og samvinnufús og er mas búinn að vera hérna hjá okkur með kærustunni bæði í mat og kaffi og til að hjálpa Beccu að taka til í herberginu sínu...sem er alveg frábært!!! Smile

Nenni ekki að skrifa meira í bili, ætla að finna mér horn þar sem ég get staðið og klórað mér bara...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta hljómar nú ekki vel... eitt er alveg víst, ég ætla aldrei að verða óléttur.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.2.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Nei Gunnar, mæli sko ekki með að þú gerir það!!!!

Jóhanna Pálmadóttir, 21.2.2008 kl. 19:38

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Þetta er nú alltí lagi Gunnar minn, þú ert örugglega alveg að verða kominn úr barneign

Erna Evudóttir, 21.2.2008 kl. 21:29

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég er sem betur fer komin úr barneign

Jónína Dúadóttir, 21.2.2008 kl. 23:16

5 Smámynd: Birna Dúadóttir

Geturðu ekki komið kláðanum yfir á Affe,hann á hann alveg skilið

Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:38

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Af því að hann barnaði hana ? Vona að hann hafi ekki gert neitt alvarlegra af sér

Jónína Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:41

7 Smámynd: Birna Dúadóttir

Æ ég hef allt of litla trú á manninum

Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 08:46

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki ég heldur, en samt, ef hann hefði ekki verið þá ættum við ekki Beccu

Jónína Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 09:35

9 Smámynd: Birna Dúadóttir

Mikið rétt hjá þér kona

Birna Dúadóttir, 22.2.2008 kl. 12:07

10 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Þar kom sá dagur að ég fór að verja barnsföður minn  Hélt aldrei að það myndi gerast...eeeen, hann á bara ekki kláðann skilinn lengur, hann er búinn að vera svo eðlilegur og í lagi undanfarið ( já alveg síðan í desember ) að það er alveg ótrúlegt!!! Sko, við erum að tala um að hann og kærastan eru mas farin að koma í mat til okkar!  Sannar bara að kraftaverkin gerast enn!!!

Jóhanna Pálmadóttir, 27.2.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband