Er eitthvað voða andlaus um þessar mundir. Nenni engu, er bara þreytt all the time, óglatt og illt í bakinu! Kemst varla í buxurnar mínar lengur, sem er ekki gott af því að óléttubuxurnar eru samt of stórar enn. Er að fara í sónar á morgun og finnst það bara ekkert spennandi, er alveg innilega þreytt á þessari óléttu, er ekki týpan sem hefur gaman af þessu, er líka drulluþreytt á barnavögnum, kerrum og bleyjuskiptum!!! Nathalie er að vísu búin að vera bleyjulaus síðan í sumar/haust, en samt!!! Nenni eiginlega engu nema kvarta og kveina og vorkenna sjálfri mér akkúrat núna. Og svo eru jólin að koma, sem er örugglega voða gaman ef maður hefði efni á að halda jól, en fyrir mér er þetta bara árstíðin sem ég hef mestar áhyggjur af hvernig við eigum að fara að því að eiga að borða eftir jól líka Og svo á nú Nathalie afmæli líka bara 11 dögum fyrir jól, þannig að þá þarf líka að kaupa afmælisgjöf handa skvísunni og halda veislu! Og svona til að fylla mælirin algerlega þá þurfti ég að kaupa skó handa allri familíunni líka!
Voðalega er kvartað núna, er bara ekki góður tími á árinu fyrir mig og það hefur aldrei lagst vel í mig að vera ólétt með öllu tilheyrandi...eeen þetta lagast!
Er annars búin að ákveða að barnið á að vera stelpa og hún á að fæðast 25. apríl, og fyrst að ég er að standa í þessu veseni á ég það sko inni hjá honum þarna uppi að ég fái eins og ég vil með þetta Verra með nafnið bara, hefði verið cool að skíra hana þá Ernu, ef þetta yrði nú svona, en ég er búin að skíra í höfuðið á Ernu already... hihi
Nei, nenni ekki að væla meira núna...vil bara hrósa manninum mínum fyrir að taka ekki til fótanna, mas amma er farin að tala um hvað hann fái að þola mikið og þá er það slæmt þegar hún er farin að tala um "Andreas greyið" hahaha
Athugasemdir
..."og þá er nú orðið hart um skít" Auðvitað tekur Andreas greyið ekkert til fótanna, hann á nú helminginn í óléttunni. Gangi þér vel elskan og kvartaðu bara... við hlustum....
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 08:23
En sko strákurinn getur alveg heitið Erna líka, ekki málið!
Erna Evudóttir, 28.11.2007 kl. 10:58
Ekkert svona Erna mín, það er auðvitað löngu búið að ákveða að strákurinn á að heita Jónína
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 11:06
Eða kannski bara Ninni !?! Ég get alveg samþykkt það
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 11:07
Ninni virkar
Erna Evudóttir, 28.11.2007 kl. 11:54
Hvaða strákur??? Er ég ekki búin að segja ykkur að ég pantaði stelpu!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 28.11.2007 kl. 12:50
Jóka mín.... við eru stærri, eldri, frekari og feitari og við ráðum þessu
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 12:55
Við Ninna vitum alveg hvernig þetta á að vera
Erna Evudóttir, 28.11.2007 kl. 13:03
Er hún Jóka litla systir ekki heppin að eiga okkur að
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 13:12
Ætli hún viti af þessu?
Erna Evudóttir, 28.11.2007 kl. 13:29
Ég er ekki viss um það.... hún var nú eitthvað að ergja sig yfir okkur þarna áðan...
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 14:06
Ertu ólétt?
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.11.2007 kl. 16:31
Hver er ólétt... ha.. ?
Jónína Dúadóttir, 28.11.2007 kl. 18:40
Yndislegt að vera ólétt og svo verður það strákur sem fæðist.
Birna Dúadóttir, 29.11.2007 kl. 07:32
Sko, við erum með þetta á hreinu, við systurnar
Jónína Dúadóttir, 29.11.2007 kl. 07:38
Takið eftir dauðaþögninni frá mér...
Jóhanna Pálmadóttir, 29.11.2007 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.