Veit að ég er voða löt við að skrifa hérna, en ég hef bara varla við! Er búin að koma mér í algjör vandræði með þetta, það tekur alveg óratíma þegar ég sest við tölvuna, sem ég geri svo alltof sjaldan. Þykist nefnilega vera upptekin við að eiga líf líka, ég er ein af þessum undarlegu mæðrum sem finnst skemmtilegra að umgangast börnin sín en sitja í tölvunni Og svona seriously speaking, hverjum hefði dottið það í hug fyrir svona eins og 10-11 árum síðan þegar barneignir var það síðasta sem mér hefði dottið í hug að fara að stunda! I had plans: ég ætlaði að fá mér hunda ekki börn! Svona snýr lífið á mann stundum, sem er gott!
Ég fann gamlan æskuvin á netinu sem ég hef ekki hitt í fjöldamörg ár, meiriháttar fyndið að sjá mynd af honum, hann var svona langur og mjór unglingsstrákur þegar ég hitti hann, og nú er hann stór, stæðilegur og nokkuð huggulegur fullorðinn maður! Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég uppgötva að tíminn stendur ekki í stað þó svo að ég sé ekki á svæðinu! Gaman að þessu!!!
Var vakin af símtali allt of snemma í morgun, sumt fólk sefur ekki á sunnudagsmorgnum! Amma mannsins míns vildi nefnilega vera fyrst með að óska mér til hamingju með afmælið, ég á nefnilega afmæli ídag . Hanna Lísa litla systir mín hringdi í mig í gær af því að Sara var ekki viss um hvort það væri í gær eða í dag, þegar ég sagði að það væri í dag þá kom Sara í símann og sagðist þá ekkert vilja tala við mig fyrr en þá! Hún er alveg frábær!!!
Nóg um það, nú ætla ég að fara og búa til súkkulaðikremið á skúffukökuna, bestu vinkonur mínar koma í kaffi ídag!
Love u all!!!
Athugasemdir
Til hamingju með daginn elsku litla systir mín
Jónína Dúadóttir, 7.10.2007 kl. 10:16
Til hamingju, gott að þú varst ekki hvolpur
Erna Evudóttir, 7.10.2007 kl. 17:28
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.10.2007 kl. 17:31
Til hamingju,mér finnst alltaf jafn gott að við skildum finna þig á tröppunum1000 kossar
Birna Dúadóttir, 7.10.2007 kl. 18:09
Takk, takk!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 7.10.2007 kl. 21:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.