Svona, nú er aftur liðinn alltof langur tími á milli blogga hjá mér...þetta er náttúrulega ekki hægt og ég dauðskammast mín, en ég ber við veðurblíðu
Ég átti 9 ára edrúafmæli um daginn, 25/3 nánar tiltekið...og vá!!! Níu ár!! Ég bara trúi þessu varla, where did time fly off to?? Mér finnst sko ekki vera 9 ár síðan ég tók mín fyrstu skref í edrúmennskunni...
Ég og maðurinn í lífi mínu fórum í ferðalag í gær og tókum Nínu litlu með okkur Við fengum lánaðan bíl og skruppum á roadtrip, sáum margt og mikið og skemmtilegt, sólin skein allan daginn og veðrið var bara yndislegt langt fram á kvöld. Og mikið yndislega er gaman að ferðast með þessum manni það var mikið flissað, við villtumst oft, fundum réttu leiðina aftur og sáum bara meira skemmtilegt fyrir vikið Við fórum að fallegu stöðuvatni og fórum út og röltum aðeins um þar, fórum upp á topp á fjalli og sáum fallegt útsýni og þetta var bara frábært
Við eigum eftir að fá þennan bíl lánaðan oftar og fara í fleiri ferðir, það er nokkuð ljóst, skapa okkur nýjar og skemmtilegar minningar saman
Anyways, nenni ekki að skrifa meira í dag, börnin eru í páskafríi sem er ekkert gott fyrir sköpunargáfuna, enda er páskafrí eitthvað sem fjandinn sjálfur hlýtur að hafa fundið upp til að refsa okkur foreldrum fyrir misgjörðir okkar hahaha
Hafiði það gott allihopa
Athugasemdir
Þú ert alveg með kristinfræðina þína á hreinu elskan... auðvitað var það skrattinn sjálfur sem fann upp páskafríið...
Ég er svo stolt af þér skottið mitt... 9 ár... þú stendur þig frábærlega...
Gleðilega páska þið öll...
Jónína Dúadóttir, 6.4.2012 kl. 09:13
hahaha já hver annars??
Gleðilega páska
Jóhanna Pálmadóttir, 8.4.2012 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.