Færsluflokkur: Bloggar

And the battle continues...

Ég var að taka til í eldhúsinu ídag...sem í svo sem ekki í frásögur færandi nema það stóð stór panna á bekknum, bara búin að standa þar síðan í gær, og brauðbretti ofan á henni...ég lyfti brettinu, vaska það upp, beini svo athyglinni að pönnunni sem ég hugðist taka þar næst...og viti menn, þarna fann ég bara heila flugueldisstöð...fullt af litlum ógeðslegum bananaflugulirfum í pönnunni minni...sem er búin að standa þarna á bekknum í tæpan sólarhring!!! Svo ótrúlega viðbjóðslegt!!! Á morgun ætla ég að taka ALLT eldhúsið ALMENNILEGA í gegn, við erum að tala um að skrúbba hvern sentimeter með klór!!! This means war and I'm NOT going to lose!!! Svo blanda ediki og uppþvottalegi og gera svona bombur sem helvítin geta drukknað í...þetta er svo NASTY!!!

Petra frænka Helenu systur eignaðist gullfallegan lítin dreng í gær, óskum henni innilega til hamingju með það, nú og Anna Björg kona Trausta föðurbróður átti afmæli í dag, allan daginn meira að segja Grin hamingjuóskir þangað líka!

Sakna ykkar þarna heima þó að það sé frábært að búa hérna! Heart


Ásatrú?

Það er búið að vera geggjað veður hérna um helgina, þrumur, eldingar og hellirigning og svo styttir náttúrulega upp á milli Smile Ég alveg elska þrumur og eldingar, óhaminn náttúrukraftinn...að finna hvernig það nötrar allt...finna rafmagnið í loftinu, lyktina...allt...

Heyrði Andreas vera að fræða miðdótturina um uppruna veðursins: "Veistu Nathalie, að sumir segja að þegar það heyrast þrumur þá er það ásaguðinn Þór sem ríður um á hestinum sínum...og eldingarnar koma þegar hann slær með stóra hamrinum sínum!"
Haaaa??? Bíddu nú við? Átti hann hest? Hvað varð um vagninn hans með geithöfrunum, hverju missti ég af??? LoL Hélt að ef það væri eitthvað sem hann kynni almennilega þá væri það einmitt eitthvað svona, en I was sadly mistaken hahahhahaa

Dóttir mín, sú elsta er búin að vera hjá pabba sínum yfir helgina, kom svo hérna heim eins og stormsveipur, eða réttara sagt fellibylur, og tilkynnti mér að hún væri búin að bjóða hálfri fjölskyldu stjúpmömmu sinnar í afmælisveisluna sína...ahhh, bíða við, hélt að það væri barnaafmæli í gangi hérna...ég get svo svarið að hún reynir svo að éta mann lifandi að stundum finnst mér að það væri the ultimate punishment fyrir allar syndir stafsetningarvillunnar ef ég leyfði henni að flytja heim til hans Devil Muahahaha, nei,nei, hún er yndisleg þessi elska, bara aðeins of mikið stundum Kissing

Jæja, nú heyrir ég ljúfa tónlist úr herbergi dóttur minnar, þ.e.a.s. systurnar fara í taugarnar á hvor annari aftur...þær eru ferlegar! Best að fara og slíta þær úr hárinu á hvor annari!!!

Jóka over and out


Tapað/Fundið

Hún Jojjo er enn að finna drasl sem við gleymdum hjá þeim LoL Þetta er orðin svona framhaldssaga, alltaf að koma skilaboð til mín frá henni á facebook með einhverju fleira sem hún hefur verið að finna...eins gott að ég gleymdi ekki góða skapinu hjá þeim, það hefði nú ekki verið erfitt sko hahaha

Í gær var okkur boði í mat hjá Gunillu, gömlu dagmömmu Einars, Axels, Ívars og Beccu Heart Bara yndislegt!

Herr Heinemann komst af stað með rútinni á leið til sinna nýju heimkynna, hann hefur ekki hringt svo ég geri ráð fyrir að þetta hafi allt verið í stíl og að hann hafi þá samband bara þegar hann hefur tíma Smile

Súperpabbinn kom í kaffi í dag með familíuna, hávær og fyrirferðarmikill að vana...hvað ég sá í honum kem ég nú seint til með að skilja, en ég er allavega ekki eina konan í heiminum sem hefur lent í svona geðbrenglun fyrst hann er í sambúð hahahaha LoL

Ég er búin að vera að velta því fyrir mér í nokkra daga hvað það sé á svölunum hjá mér sem er svona vooooðalega vond lykt af...samtímis hef ég verið að pæla í hvaðan allar þessar flugur koma sem eru að festast í ræmunni sem ég hengdi upp í eldhúsinu...en í öllum þessum pælingum þá datt mér aldrei í hug að flugurnar og lyktin hefðu eitthvert samband...fyrr en í dag þegar ég fann 2 ruslapoka vel falda á bak við kassa með sanddóti á svölunum...og undir þeim ógrynnin öll af flugulirfum!!! Svooooo ÓGEÐSLEGT!!! Ég á ekki eftir að borða í fleiri vikur mér varð svo óglatt af þessu...tók mig langan tíma að þrífa þetta með góðri hjálp frá Beccu minni sem er ekki alveg jafn viðkvæm og ég í svona málum...sko, ég klára alveg kóngulær, var mas með eina inni á baðherbergi sem fékk alveg að vera í friði og var þar að auki gefið nafnið Bertil...flugur trufla mig ekkert heldur í eðlilegu magni, járnsmiðir eru krúttlegir og maurar áhugaverðir...eeeen lirfur, NO WAY!!!
Verðlaunaði svo okkur duglegu mæðgurnar með góðri köku, kókglasi og frábærum þætti af Fringe, þeas eftir að ég hafði stundað ákafa hugleiðslu í hálftíma til að losna við myndina af lirfum í matnum mínum úr hausnum....OJ BARA!!!

Jæja, ætla að reyna að sofa í hausinn á mér í hitanum...ég elska þetta loftslag...það er svo frábært þegar er svo heitt að maður sefur bara undir sængurveri varla í fötum með gluggan opinn og finnur goluna sem svona rétt kælir aðeins...yndislegt bara, ég elska sumarið í Sverige!!! Grin

Jóka over and out!


Óvænt heimsókn :)

Fyndið hvernig lífið getur verið tilviljanakennt Smile Ég var á leiðinni út með stelpurnar í gær og þegar ég kem niður með lyftunni sé ég að það stendur kunnugleg fígúra og er að lesa skyltið með nöfnum þeirra sem búa í stigaganginm...ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég fattaði afhverju fígúran var svona kunnugleg, þarna var þá komin góðvinur okkar, Wolfgang. Hann flutti heim til Þýskalands fyrir ja, ábyggilega 2-3 árum síðan... við höfum alltaf verið í bandi, og nú birtist hann bara hérna, alkominn aftur til Svíþjóðar Smile

Wolfgang er þýskur og MJÖG framkvæmdasamur, enda var hann ekki búinn að vera hérna lengi fyrr en hann var búinn að redda sér íbúð og vinnu í öðrum bæ stutt frá okkur, hann stoppaði stutt, var rétt að fara af stað til að ganga frá málunum...bara að drífa í þessu LoL Ekki slæmt fyrir að vera 61 árs hjartveikur fyrrverandi heróínisti! Wolfgang er flottur karl!!! Hann lofaði að hringja seinna ídag og láta vita hvernig gengi og ég fékk hann líka til að lofa mér að hann kæmi tilbaka til okkar ef þetta gengi ekki upp!

Mér finnst svo gaman að hann skuli vera kominn hingað aftur, ég hef saknað hans mikið og á tímabili hélt ég að eitthvað hefði komið fyrir hann og taldi hann dauðan af því að það leið rúmt ár án þess að hægt væri að ná í hann. Þá komst ég líka að hversu erfitt það er að hafa uppi á fólki í Þýskalandi, það er nefnilega ALVEG vonlaust að reyna að grafa upp hvort fólk sé lifandi eða dautt þar. Ég sendi mas lögreglunni í Hannover e-póst og spurðist fyrir, en fékk ekkert svar frá þeim...þjónustulundin greinilega engin! Þess vegna getið þið rétt ímyndað ykkur hvað mér létti þegar hann hringdi loksins, hvað þá að hann skyldi bara birtast svona LoL
Hann er alveg einstakur karakter og góður vinur! Gott að vita af honum nálægt og geta hitt hann annað slagið SmileHeart

Nóg um það, ég fór á fætur fyrir allar aldir til að kveðja hann og nú ætla ég að halla mér í smástund áður en litla skottið mitt vaknar, síðan verður ábyggilega farið niður á strönd seinna í dag, ljómandi veður hérna að vana Smile

Eigið góðan dag hvort sem það er sól úti eða inni hjá ykkur Wink


Að kasta vatni og annað gaman :)

Það er ennþá svona rosalega frábært veður hérna úti...í dag var svo heitt að við fórum í vatnsstríð á lóðinni hans Einars, allir rennandi blautir nema ég...ég er svo virðuleg sko  LoL

Bjura og Helena komu með 2 af strákunum og alla hunda...meiriháttar að hitta þau eins og alltaf...grilluðum pylsur og höfðum það nice LoL

Á morgun verður svo ferðinni heitið heim á leið aftur, á eftir að sakna þeirra hérna mikið, en það verður samt gott að koma heim til síns!

Nenni ekki að skrifa meira, er búin að vera með dúndrandi höfuðverk þrátt fyrir góðan dag og er rosalega sybbin...

Jóka over and out :)


Til hamingju með afmælið Ívar!!!

Í dag á elsku litli strákurinn minn hann Ívar afmæli, í dag er hann orðinn táningur!!! Til hamingju með afmælið hjartans kallinn okkar, öll fjölskyldan sendir þér hamingjuóskir og ástar-og saknarðarkveðjur!!! Heart InLove

Just another sunny day in Linköping :))

Það var alveg frábært veður hérna í dag líka, labbaði til Valla með stelpurnar, þær fengu að fara á hestbak og svo kíkktum við inn á söfnin sem eru þar...skoðuðum gamla hestvagna og ýmislegt annað sniðugt. Svo að sjálfsögðu fórum við á leikvöllin í smástund og enduðum svo Valla ferðina í dag með að fara og sjá geiturnar ("Uundunn kom!" hrópaði Nína Lára þá), hænurnar ("Pippi!") og kanínurnar, sem voru samkvæmt litlu "Kita" sem þýðir kisa Grin Hún er alveg yndisleg sú stutta!

Svo var förinni heitið á næstu hamborgarabúllu að borða kvöldmat og svo fundum við nýja leið heim til Einars, þá skal tekið fram að enginn Linköpingsbúi var með, bara við stelpurnar SmileCool

Svo náðum við rétt að lenda heima þegar Bjura og Helena komu í kaffi með krakkana sína, gaman gaman! Grin

Er hissa á öllum látum í kring um andlát Michael Jackson. Greyið maðurinn átti ábyggilega ekki svo gott líf, þetta var algjör sirkus og svo á að breyta dauða hans í sama sirkusinn...finnst þetta bara sorglegt allt saman...

Jæja, Jóka over and out for now


Sumar og sól :)

Jæja, mikið voðalega langt síðan ég bloggaði síðast, sorry...hef bara verið á fésinu og látið það duga...

Er í besta yfirlæti hjá Einari og Jojjo, búin að vera í viku með allar stelpurnar og ætla heim aftur á þriðjudaginn...stelpurnar ELSKA að vera hérna að sjálfsögðu, hjá þessu yndislega fólki...og mér finnst það svosem ekki leiðinlegt heldur Grin

Litla mín, Nína Lára hleypur á eftir ædolinu sínu út um allt: "Eina, Eina, titta!"  Einar hennar þarf sko að sjá ALLT sem hún gerir...svo gerir hún svona hææææja!!! á hann, hann er að sjálfsögðu strax farinn að kenna henni sjálfsvörn sem er bara frábært! Tounge Nú og svo fær greyið Jojjo aldrei að vera í friði fyrir henni heldur, ef hún reynir að fá sér að borða er litla komin strax og vill fá að "makka" hjá henni LoL "Uuundunn" þ.e.a.s. hundurinn "Íita" (Zita) fær sinn hlut af athyglinni líka þegar sú stutta sækir mat í skálina hennar og smakkar og býður með sér LoL Þetta er bara yndislegt!!! 

Nathalie Erna og Becca eru búnar að eignast vini í krökkunum í næstu íbúð og sér varla til þeirra nema þegar þær koma inn annað slagið til að fá að borða eða gefa Jojjo svona random knús InLove

Veðrið er búið að vera dásamleg hérna og á að vera eitthvað áfram, ídag er búið að vera svo heitt að við Einar nenntum ekki einu sinni að fara í dojon og lemja hvort annað og þá er sko heitt..pizza í kvöldmat af því að það er sko enginn sem hefur orku í að elda... LoL

Á morgun er á planinu að fara til Valla og leyfa stelpunum að fara á hestbak og á sunnudaginn ætlum við Einar að fara to the dojo Smile

Óska ykkur yndislegs dags í góða veðrinu, Jóka over and out! 


27. febrúar :)

Til hamingju með 18 ára afmælið elsku Birna mín!!! HeartHeartHeart


Long time no blog...

Jæja, þá erum við flutt loksins, yndislegt bara!!! Það er svo ótrúlega gott að hafa nóg pláss fyrir draslið manns :)
Ég var snögg að fjárfesta í veglegum bókahyllum svo gersemirnar mínar þurfi ekki að vera pakkaðar niður óþarflega lengi...búin að pakka upp 6 kössum af bókum so far og hyllurnar varla hálffullar Smile Já, ég er sko nefnilega með borðstofu/bókasafn hérna! Smile Eldhúsið er að vísu pínulítið, skondið að það skuli vera það í svona stórri íbúð, en við borðum allar máltíðir í borðstofunni bara við stóra borðið mitt og svo keyptum við bara lítið borð í eldhúsið...nú svo erum við með glugga í 3 áttir, 2 svalir, sitthvoru meginn á húsinu, 3 baðherbergi og nóg af svefnherbergjum handa öllum...það er svo mikið pláss hérna að Nathalie Erna villtist í byrjun Grin

Nú, svo kom snjór í gær, gaman gaman, en því miður kom svo hláka í dag.

Nathalie Erna náði sér í hlaupabólu og Becca mín vildi líka vera með en af því að hún er búin að vera með hlaupabóluna náði hún sér bara í flensu í staðinn svo þær voru heima í rúma viku, fóru svo í skólann/leikskólann á miðvikudaginn og eru svo núna komnar í vikufrí PinchLoL Yndislegt bara!

Þarf að skella inn myndum af "the mansion" en þangað til set ég hérna glænýjar af börnunum SmileN´na jólasveinnNína og Rambóstelpurnar í baði


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband