Stolt!

Hún Becca mín er með í barnakór kirkjunnar hérna! 27/10 er kórinn að fara að syngja inn á geisladisk, og þá hefur elsku stelpan mín verið beðin um að syngja einsöng í einu laginu!!! Má ég springa af stolti núna takk!!? SmileSmile

Fór með Nathalie Ernu litlu til læknis í morgun sem sagði mér að hún væri komin með lungnabólgu og gaf henni pensillín og hóstasaft "sem hún verður syfjuð af"! Litla skinnið!!! En svo kom pakki frá Ninnu með Latabæ á íslensku og it really made her day, hún sofnaði á sófanum eftir 2 þætti! Smile

Eftir 2 vikur fæ ég strákana mína hingað, og fæ að fara á íshokkíleik með þeim!!! Smile Æðislegt, hlakkar svoooooo mikið til!!! Það er alltaf yndislegt að fá að hitta "aukabörnin" mín en enginn smá bónus að fá að fara með þeim á leik líka!!! Er að spá í að leyfa Beccu minni að koma með, hún hefur aldrei farið, en er bara að hafa pínu áhyggjur af að faðir hennar verði á svæðinu, hann er það oft!!!

Jæja, ætli maður verði ekki að þykjast vera dugleg húsmóðir og henda í uppþvottavél og elda ofan í liðið! Ætla að gera ljúffengan fisk í ofni með hvítlauk, persilju og allskonar gumsi!

Eigið góðann dag elskurnar mínar!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Þú átt yndislegar skvísur dúllan mín

Birna Dúadóttir, 15.10.2007 kl. 18:04

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ybdislegar, duglegar og hæfileikaríkar dúllur, alveg eins og mamma þeirra

Jónína Dúadóttir, 15.10.2007 kl. 20:13

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju... skil vel að þú sért að springa af stolti

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.10.2007 kl. 20:49

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þær eru sko ekki "ybdislegar" þær eru YNDISLEGAR

Jónína Dúadóttir, 16.10.2007 kl. 07:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband