Hef ekki nennt að skrifa neitt hérna langa lengi, varla farið inn og lesið einu sinni...hvaða kæruleysi er þetta í konunni?
Hef verið að lesa um "náttúruhamfarirnar" á Íslandi í sænskri pressu, svona mér til gamans...alveg er fyndið hvað þetta er yfirdrifið og dramatískt hjá svíunum! Eitt stærsta blaðið náði sambandi við einhverja konu þarna heima, íslenska, sem bjó þarna nálægt eldstöðvunum og svo gátu lesendur netbleðilsins spjallað við þessa konu live...þið hefðuð átt að sjá spurningarnar...einn var mas að fræða konugreyið á því hvað aska væri hættuleg...sure, okkur vantaði svo einhvern nafnlausan svía á einhverjum spjallþræði til að fræða íslensku þjóðina um hættu þess að anda að sér ösku
Nú, svo horfði ég á eitthvert svona myndskeið á sama sænska blaði þar sem þulan með titrandi röddu segir frá hvernig fólk var vakið um miðja nótt og sagt að samstundis flýja heimili sitt, úti mætti fólkinu öskuregn og þykkur, eitraður reykur! hahaha Enda líka er nóg að það komi smá snjókoma hérna til þess að strætókerfið fari í steik og tíðni árekstra aukist til muna. Svíar eru ekkert sérlega rólegt fólk og ég get ekki ímyndað mér fárið sem yrði hérna í Suður Svíþjóð ef það myndi nú koma smá jarðskjálfti hérna! Þessi vetur td var mjög Akureyrskur, langur, kaldur og mikið af snjó (sem ég elskaði btw), og núna þegar hann er að verða liðinn á enda er fólk í hrönnum að mynda hópa á feisbúkk sem heita td "Við sem lifðum af ístiðina 2010!" hahaha
Nú annars er það í fréttum að Jóhanna sem er svooo gáfuð og snögg að hugsa yfirleitt var að fatta eftir 6 ára hjónaband að maðurinn sem ég er gift er bara svíi að nafninu til, í raun og veru er maðurinn finnskur, sem gerir að verkum að litlu stelpurnar mínar eru finnsk-íslenskar en ekki sænsk-íslenskar. Þetta er nú soldið fyndið af því að ég er eiginlega búin að vita þetta allan tímann, en var samt ekki að kveikja á þessu fyrr en núna um daginn Mín góð bara! Hvað ætli það verði næst, ég kannski fatta allt í einu að hann er transa eða eitthvað (þarf maður að vera það þó hann noti naglalakk, eða er naglalakki kannski bara byrjunin á einhverju öðru? ).
Jæja nóg af bulli í bili, hlakka til að sjá Kötlu gjósa bara, verður fyndið að lesa greinarnar hérna þá!
Lífið kemur fyrir, og það kemur fyrir mig
Knús á ykkur öll
Athugasemdir
Þetta eru alveg svakalegar náttúruhamfarir hérna, ég er í sjokki, NOT Mikið er ég feigin að hann er finnskur Knús á þig sætust
Birna Dúadóttir, 23.3.2010 kl. 16:57
hehehe, ég er líka fegin!
Já er þetta ekki alveg svakalegt? Ég er að safna pening til að geta sent öllum ættingjum mínum gasgrímur sem ég ætla að fá að kaupa frá sænska hernum
Jóhanna Pálmadóttir, 23.3.2010 kl. 19:27
Hóst... hóst... hvenær koma grímurnar...Finnskur... hm... ok ef hann er almennilegur þá má hann vera geimvera fyrir mér...Sko þetta fer svolítið eftir því hvernig naglalakkið er á litinn... pældu í því
Knús elskan
Jónína Dúadóttir, 24.3.2010 kl. 08:11
Sammála Ninnu með litinn, gæti verið bleikt Þá myndi ég nú kaupa mér strigaskó, reima þá fast og hlaupa
Birna Dúadóttir, 24.3.2010 kl. 08:45
Ninna, þetta er alveg að koma hjá mér, er búin að standa fyrir utan búðina alla viku og nú held ég að ég geti keypt amk 5 grímur sem þið getið skipst á að hafa! Og stelpur, það var fjólublátt, er það að sleppa?
Jóhanna Pálmadóttir, 24.3.2010 kl. 09:08
Fyrstir koma fyrstir fá, sendu grímurnar bara í Kef, ég skal svo senda þeim það sem ég þarf ekki að nota Fjólublátt hmm veeeeeiiiit það ekki
Birna Dúadóttir, 24.3.2010 kl. 10:49
Ekki spurning,þú hefur alltaf verið fjölalþjóðleg Jóka mín! Ekkert að gera með grímur í Rvík,svaka mengun hvort eð er. Myndum ekki finna fyrir öskufalli eða flúor!
Helga Dúadóttir (IP-tala skráð) 24.3.2010 kl. 12:35
Hey móðir, nú ert þú búin að sýna það og sanna að þú manst hvernig maður loggar in hérna, hvernig væri nú að skella inn svona eins og einu bloggi eða svo?
Jóhanna Pálmadóttir, 24.3.2010 kl. 16:22
Fjólublátt ? Hm... æi ég veit það ekki, passar alveg á servíetturnar í fermingarveislunni hans Ívars... en... nei nei
Jónína Dúadóttir, 24.3.2010 kl. 21:48
Point taken, skal biðja hann að skipta um lit
Jóhanna Pálmadóttir, 25.3.2010 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.