OJJJJ BARA!!!

Tók inn grein handa kanínuni í gær og greinilega var eitthvað á henni sem ákvað að flytja inn í hálminn á kanínubúrinu!!! Henti Lúðvík (kanínunni) út á svalir í ofboði, með vatn og mat með sér, fleygði stelpunum fram og sleit fram úðabrúsann með eitrinu...muahaha...kill them all!!! Nú á ég bara eftir að þrífa búrið svo Lúlli greyið geti komið inn úr útlegðinni Devil Ohhh...HATA svona ógeð!!! Ég er farin heim!!!

Náði loksins í yfirmanninn minn ídag til að fá að vita hvenær ég á að byrja í nýju vinnunni...byrja 6. ágúst "svona um níuleytið"! Þarf að fara að róta í fataskápnum til að finna viðeigandi klæðnað...ekki viðeigandi að vera í gallabuxum...þetta er svona jakkafata-pleis! Hlakkar alveg svakalega til að byrja þarna!!!

Fór á samkomu um helgina, var nefnilega boðið að vera ræðumaður þar...gekk mjög vel, stækkaði alveg helling við það...núna nær Ninna stubbur mér ALDREI!!! Muahahahahahaha DevilTounge

Veðrið er alveg skítsæmilegt, hitabeltishitinn búinn og núna er bara svona meira melló sænskt sumar hjá okkur...samt betra veður en heima!!! :)

Fór með stelpurnar til Gautaborgar í síðustu viku, á stað sem heitir Universeum...svaka flott!!! Þeir eru með hákarla, ekkert smá cool, maður fer inn í svona glergöng og sér þá synda yfir hausnum á manni...svo eru þeir með alls konar eiturslöngur, piraya-fiska, anakondu, þeir eru með heilan regnskóg líka, svakalega flott...þetta er svona eitt stórt gróðurhús sem er regnskógarlíkan, apar og alls konar dýr bara laus og svona!!! Kíkkið endilega inn á heimasíðuna: www.universeum.se
Beccu fannst þetta voða flott, en Nathalie fannst þetta meira svona scary... Þeir eru m.a.s. með svona fiska eins og þann sem varð Steve Irwin "The Crocodile Hunter" að bana.

Jæja, nenni ekki að skrifa meir í bili, skal samt reyna að vera ekki svona löt...

Knúúús á línuna!

PS: Ninna, ég er búin að gleyma hvenær þú sagðist vera að koma til Gautaborgar?


Ég brádnadi...

Sit hjá vinkonu minni sem er ekki med íslenskt lyklabord, bidst velvirdingar á thví!!! Smile

Margt gott og gaman og spennandi ad gerast í mínu lífi thessa dagana, ný vinna, stúdentaveisla, vinkona mín ad eiga barn...vid erum 2 hérna ad passa fyrir hana, hún er uppi á faedingadeild og var sett af stad í morgun..bídum spenntar eftir fréttum...

Hef ekki nennt ad blogga lengi og svo er ég líka búin ad vera hjá Ernu...skrifa lengra blogg um allt sem er ad gerast thegar ég er komin heim, hvenaer sem thad svo sem verdur Grin

Have a nice day, I sure will!!!


Heitt heitt!!!

hitiSvona heitt var hjá mér í sólinni hérna í fyrradag! Ég varð að taka mynd af hitamælinum, svo ég gæti séð eftirá að þetta væri ekki bara ímyndun Cool  Hitinn fór sem hæst upp í 37,8!!! Ég öfunda Birnu ekkert af Grikklandsferðinni, þarf ekkert að fara neitt til að komast í hita!

Sumar sumar sumar!!!

Loksins er sumarið komið!!! Vaknaði í morgun og sá að sólin skein, leit á hitamælinn og á honum stóð 30!!!!! Aaalveg að kafna hérna! Cool

Var á skólaslitunum hjá Beccu áðan, drulluheitt og hundleiðinlegar ræður en Becca alveg æðisleg, eins og alltaf...myndir koma seinna. Myndavélin mín ákvað að fara í verkfall allt í einu, en sem betur fer var vinkona mín með sína með sér!

Nei, nenni ekki að skrifa meira, það er of heitt til að hugsa!!!

 Love u all.


Noh...kvartiði núna!!! :)

Your results:
You are Supergirl
Supergirl 80%
Batman 75%
Wonder Woman 75%
Green Lantern 70%
Catwoman 70%
Superman 65%
Spider-Man 60%
The Flash 60%
Robin 55%
Hulk 55%
Iron Man 55%
Lean, muscular and feminine.
Honest and a defender of the innocent.
Click here to take the Superhero Personality Test

Þetta grunaði mig alltaf!!!

Your results:
You are Supergirl
Supergirl 80%
Batman 75%
Wonder Woman 75%
Green Lantern 70%
Catwoman 70%
Superman 65%
Spider-Man 60%
The Flash 60%
Robin 55%
Hulk 55%
Iron Man 55%
Lean, muscular and feminine.
Honest and a defender of the innocent.
Click here to take the Superhero Personality Test

Aliquando et insanire iucundum est.

Fékk rétt í þessu samtal, ég er búin að fá vinnu Angry Þarna fór sumarfríið mitt fjandans til!!!
Fékk vinnu við símasölu, byrja á miðvikudaginn! Voða gaman þannig, en ætlaði eiginlega að fá smá sumarfrí! Ojæja, hef þá kannski loksins efni á að taka bílpróf!

 


Brjálað að gera 2!!!

Var ekki fyrr komin úr viðtalinu sem gekk of vel fyrr en það var hringt í mig frá öðrum stað og mér boðið að koma í viðtal þar á morgun!!! Skuggalegt!!! Líka svona símasöludæmi.

Gleymdi alveg að skrifa um það í morgun, en í dag eigum við hjónin 3 ára brúðkaupsafmæli, sem myndi vera leðurafmæli samkvæmt áreiðanlegum heimildum Tounge Úúú...kinkí!!! Og þar að auki þá á elskan mín afmæli ídag, 26 ára ungur! Ég gerði honum smá grikk og bauð vinum okkar í afmæli án þess að hann vissi af því...vinkona mín bakaði fyrir mig og svo réðust allir inn hérna þegar við vorum nýkomin af aikido æfingunni hennar Beccu!

 

 

Og það var annað, Becca tók ídag gráðuna 12 kyu í Aikido, set inn myndir af "graderingen" (veit ekkert hvað það heitir á íslensku) fljótlega!

Læt fljóta með eina mynd af brúðparinu í tilefni dagsins! DSC01096

Lifið heil, sjálf ætla ég að bjóða manninum mínum að éta afganginn af rjómatertunni með mig í hlutverki disksins! InLove 

 


Brjálað að gera!!!

Var í atvinnuviðtali í gær á elliheimili, er að fara í annað viðtal eftir hálftíma, í símavændi (símasölu) Tounge...með þessu áframhaldi verð ég örugglega óheppin og fæ vinnu LoL

Kanínan biður að heilsa!

Eigið góðan dag í bleytunni!!!


Nýr fjölskyldumeðlimur!

Eignaðist kanínu í vikunni! Þetta grey er búið að vera í eigu vinkonu minnar sem er drulluhrædd við kanínur, og dóttur hennar sem er bara ekkert góð við dýr...þannig að greyið Ludde eins og hann heitir, er búinn að vera lokaður inni í búrinu sínu í nærri 2 ár!!! Og þetta búr er nú ekki svo stórt! Hún er búin að reyna að losna við hann lengi, en í þessu aflanga landi eru undarlega margir hræddir við kanínur!!! Ég er engann veginn að skilja þetta, hvað á eitt kanínugrey svo sem að geta gert manni??? Maðurinn minn er að venjast Ludde núna, en í byrjun var hann skelfingu lostin, sérstaklega eftir að ég hleypti Ludde út, ég leyfi honum nefnilega að hoppa um íbúðina eins og honum sýnist þegar ég er heima til að fylgjast með honum. Andreas vildi meina að hann væri vampýrukanína með stórar vígtennur sem vildi ekkert frekar en ráðast á hann og hreinlega éta hann!!! LoL En, eins og ég segi, þá er hann að venjast honum, meira að segja farinn að taka hann upp! En, ég get sagt ykkur það að hann Ludde er sko one happy bunny núna, eftir þessa löngu fangelsisvist að vera kominn til fólks sem gefur honum ást, umönnun og mikla athygli...já, og hreint búr...búrið hans var nefnilega alveg sorglega skítugt og svo hafði hann bara blöð að liggja á!!! Nú er hann með hálm og hey og alltaf nýja gulrót á hverjum degi Smile

HPIM2246

Og yfir í annað, maðurinn minn er svo feikna duglegur að hann fór í vinnu klukkan 5 í morgun og var að vinna til 11!!! Þessi maður er búinn að liggja eins og baunapoki upp í sófa í fleiri ár og varla hægt að fá hann til að skreppa útí búð, og núna allt í einu farinn að vinna eins og íslendingur!! LoL  Þvílík breyting á einum manni!!! Hann er gjörsamlega staðráðinn í að taka alla yfirvinnu sem hann getur!!! Sem er gott, Hjödda, Kaupmannahöfn lítur mjööög vel út núna Wink

Eigiði yndislegan dag í sólinni, hvort sem hún er úti eða í hjörtum ykkar! Cool
(hér er sól og hiti)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband