Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Oj bara!!!

Fann lús í hárinu á dætrum mínum í kvöld, er með það á hreinu að Erna sendi þær í pósti eða gegnum símann!!! Hef aldrei lent í þessu áður og finnst þetta alveg hryllilega ógeðslegt!!!

Gerði góðverk í dag og keypti stærra fiskabúr handa elskunni minni...hann var eins og lítill strákur í nammibúð, búinn að vera að dunda sér við búrið í allan dag og svo bara sitja og horfa og horfa og horfa... Smile Gaman að þessu!


Jamm!

Hmm...voða löt við að slásst við að komast í tölvuna...almenn leti í gangi hérna meginn!!!

Byrja sennilega að vinna í næstu eða næst næstu viku við símasölu (aftur) Crying en bara í mesta lagi hálfann daginn...þarf líka að fara að hugsa fyrir að pakka, er búið að lofa okkur íbúð fyrir fæðingu...vona að það standist, það er already orðið óþægilega þröngt hérna...

Hmmm...nenni ekki að skrifa meira núna...eigið bara ánægjulegt kvöld Smile 

PS: Ninna, fannst þér peysan hennar Ernu litlu ekki vera alveg roooosalega jóló? LoL Reyndu sko ekki að koma þeirri dömu í svona jólalegan prinsessukjól!!! Hahaha!!!


Er á netinu, ótrúlegt en satt!!!

Komst á netið í smástund, varð bara að láta vita að ég er á lífi, skrifa meira seinna...hugs!

Gleðilegt ár!

Er hérna enn, hef ekki gefið mér tíma til að sitja í tölvunni lengi...hún er einhvern veginn alltaf upptekin þegar ég hef tíma! Ef það er ekki elskulegur eiginmaður minn þá er það litli bróðir hans sem er að spila...karlmenn! Tounge

Kim, mágur minn tók með sér Nathalie á bókasafnið ídag, og þegar hann var úti að reykja, með hana með sér náttúrulega, þá kom kall sem á heima undir okkur; ALGJÖR TUSSA; (afsakið orðbragðið), út á eftir þeim, glápandi á Nathalie allan tímann settist hann á bekk, dró niður buxnaklaufina og byrjaði að káfa á sér!!! Þvílíkur helv... viðbjóður!!! Sem betur fer sá Kim þetta og náði að snúa Nathalie þannig að hún varð ekki vör við hvað var á seyði, henda rettunni frá sér og ýta henni á undan sér inn aftur!!! Við kærðum þetta að sjálfsögðu!!! Þessi sami kall lamdi hana í sumar, hún var fyrir honum þegar hann var að flýja frá Andreas sem stoppaði hann við að hnupla nammi útí búð!!! Kærðum það líka!!! Við erum líka búin að hringja í lögguna á hann örugglega trilljón sinnum undanfarin ár þegar hann hefur verið öskrandi og gargandi hérna í stigaganginum af því að fyrrverandi konan hans vill ekki hleypa honum inn, hann eltir krakka og hræðir, eltir fullorðið fólk og betlar (hann á nógan pening!) og SAMT gengur hann ennþá laus!!! Hann er með einhvers konar fötlun og á erfitt með tal, en það er ENGIN afsökun fyrir að hegða sér eins og svín!!!

Jæja, nóg um það, varð bara að fá að skrifa af mér aðeins!

Óléttan gengur eins og vera skal, og ég hef ALDREI verið jafn þung og ég er núna!!!

Eigið góðan dag!!!Heart


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband